Skóli atvinnulífsins
Dreifnám

Innritun í dreifnám á haustönn 2010 hófst 1. júní  og lýkur mánudaginn 9. ágúst.

Dreifnám er nám utan dagskóla og sameinar kosti fjar- og kvöldnáms. Í dreifnámi getur áfangi verið kenndur að öllu leyti í fjarnámi, en þá fer kennsla fram í gegnum kennsluvef skólans, Námsnetið, eða að öllu leyti í staðbundnu námi. Einnig geta áfangar verið kenndir að hluta í fjarnámi og hluta í staðbundnum lotum.

Dreifnám kemur í stað fjar- og kvöldnáms.  

 

Gjaldskrá dreifnáms í undirskólum Tækniskólans.

Innritunargjald       12.000 
 Einingar 1 til 10 7.500 á einingu 
 Einingar umfram 10   6.000 á einingu

 

Aðstoð við innritun verður mánudaginn 9. ágúst frá kl. 16:00 - 18:00.

INNRITUN Í DREIFNÁM 

Önnur gjaldskrá gildir fyrir nám í Tækniakademíu, þ,e, flugrekstrarfræði, útvegsrekstrarfræði, almenna línu í rekstri og stjórnun og lýsingarfræði. Sjá undir Endurmenntunarskólinn.

Sjá nánar um dreifnám í Tækniskólanum


 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica