Skóli atvinnulífsins
Bókasafn

Bókasafn

Frá og með 14. maí verður opið frá 9-16 á bókasöfnunum. Frá og með 21. maí verður alveg lokað á Háteigsvegi þar til eftir sumarlokun skólans.

Nýtt húsnæði bókasafnsins á HáteigsvegiBókasafnið Skólavörðuholti sími 514-9021.

Opið mánud. til föstud.: 9:00-16:00

Bókasafnið Háteigsvegi sími 514-9026.
Opið mánud. til föstud.: 9:00-16:00. 

 

Bókasafn skólans er á tveimur stöðum, Skólavörðuholti og Háteigsvegi. Því er ætlað að vera upplýsingamiðstöð fyrir nemendur og starfsfólk skólans. Á bókasafninu Háteigsvegi geta nemendur fengið upplýsingar sem áður voru veittar á skrifstofu skólans. Þangað er einnig hægt að skila inn læknisvottorðum og sækja staðfestingu á skólavist.

Meginhlutverk bókasafnsins er að veita nemendum og starfsmönnum greiðan aðgang að upplýsingum og heimildum vegna náms og kennslu. ;Á safninu er veitt fjölþætt og persónuleg þjónusta og því er ætlað að styðja nám og kennslu við skólann. Þjónusta við notendur felst einkum í faglegri upplýsingaþjónustu, leiðbeiningum við heimildaleit og upplýsingalæsi ásamt úrvinnslu heimilda, útlánum og margs konar námsaðstoð. Einnig styðja söfnin þróunarstarf skólans og félagslíf.

Mikið úrval er af bókum, tímaritum og DVD myndum til leigu á báðum stöðum, án endurgjalds fyrir nemendur og starfsmenn.Inni á bókasafninu Háteigsvegi

Starfsfólk safnsins aðstoðar notendur við upplýsingaleit og heimildaöflun. Bókasafnsfræðingar annast upplýsingaþjónustu og má senda þeim fyrirspurnir á netfangið ir@tskoli.is.

Lesstofur og tölvuver eru á báðum bókasöfnunum. Einnig er aðstaða til að prenta út og skanna inn. Nemendur geta sótt um rafrænan aðgang að lesrými á Háteigsvegi ef þeir vilja notfæra sér aðstöðuna eftir lokun bókasafnsins.

Námsaðstaða Háteigsvegi

Starfsmenn:

Nafn Starfsheiti Netfang Sími Farsími
Ásgerður Sveinsdóttir Bókavörður asgerdur@tskoli.is 5149021
Ingibjörg Rögnvaldsdóttir Forstöðumaður bókasafns ir@tskoli.is 5149033 6951398
Ómar Árnason Bókavörður oar@tskoli.is 5149021 6953465
Ragnhildur Blöndal Bókasafns- og upplýsingafr. rb@tskoli.is 5149026
Sigurlaug Rósa Guðjónsdóttir Bókasafns- og upplýsingafr. srgu@tskoli.is 5149026
Svava Traustadóttir Bókavörður mailto:st@tskoli.is
5149021

Settu þér raunhæf markmið, einfaldaðu glósurnar , farðu aftur og aftur yfir aðalatriðin og þú nærð markmiðinu.








Tækniskólinn

Tungumál