Skóli atvinnulífsins
Hönnunar og handverksskólinn

Í Hönnunar- og handverksskóla Tækniskólans eru starfandi eftirtaldar námsbrautir sem fela í sér undirbúning fyrir áframhaldandi nám (háskólanám ) í hönnun, handverki eða listum, eða sérhæfingu í löggiltri faggrein:

 

a)      Hönnunarbraut, kjörsvið - almenn hönnun (undirbúningsnám fyrir   háskólanám á sviði hönnunar og lista)

b)      Hönnunarbraut, kjörsvið – keramik  (undirbúningsnám fyrir háskólanám eða annað nám á sviði hönnunar og lista

c)      Hönnunarbraut, kjörsvið – textíl  (í vinnslu)  

d)      Fataiðnbraut  (fatatækninám (undanfari iðnnáms) , kjólasaumur (löggilt iðngrein) og klæðskurður (löggilt iðngrein) 
          Nánar um inntöku nema í fatatækni.

e)       Gull- og silfursmíðabraut. (löggilt faggrein)
           Nánar um inntöku nema í gull- og silfursmíði

f)       Tveggja ára diplómanám (viðbótareiningar til háskólanáms)
          í mótunteikningu eða textíl - með möguleika á 3. ári til BA-gráðu við         erlendan háskóla. ATH. umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 9. júní

 

 Hönnunar- og handverksskólans að störfum

  a-c) Námið á kjörsviðum hönnunarbrautar er þriggja ára undirbúningsnám á framhaldsskólastigi með útskrift af Hönnunarbraut (kjörsvið almenn hönnun, keramik eða textíl; 21-24 sérhæfðar einingar) . Nemendur geta jafnframt lokið námi með stúdentsprófi, með viðbótarnámi í almennum bóklegum námsgreinum. Umsækjendur sem þegar hafa lokið stúdentsprófi eða starfsnámi með sambærilegt umfang geta sótt um nám á brautinni eftir hraðferðaráætlun og lokið náminu á mun skemmri tíma. Keramik-kjörsvið er unnið í samstarfi við Myndlistaskólann í Reykjavík og kennt er á verkstæðunum þar. Starfsvettvangur hönnunar og lista er ákaflega víðfeðmur en getur líka verið áhugamál sem veitt getur lífsfyllingu frá bernsku til elliára.

d) Námið á fataiðnbraut býður upp á fatatækni sem er tveggja ára starfsnám fyrir þá sem vilja undirbúa sig fyrir störf í atvinnulífi eða áframhaldandi nám á sviði handverks eða hönnunar og er jafnframt undanfari náms í löggiltu iðgreinunum kjólasaumi og klæðskurði. Að loknu námi í fatatækni geta nemendur valið sér sérhæfingu svo sem kjólasaum og klæðskurð sem  eru löggiltar iðngreinar með áherslu á sérsaum, búningasaum, sniðagerð og aðra fagvinnu sem tengist hönnun og framleiðslu fatnaðar. Meðalnámstími er fjögur ár að fatatæknináminu meðtöldu og 24 vikna starfsþjálfun. Náminu lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni.

e) Námið á gull- og silfursmíðabraut er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er fjögur ár, samtals fimm annir í skóla og 72 vikna starfsþjálfun. Meginmarkmið námsins er að gera nemendum kleift að öðlast þá þekkingu og færni sem gull- og silfursmiðum er nauðsynleg í störfum sínum. Náminu lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs. Nemendur geta jafnframt bætt við sig stúdentsprófi, með viðbótarnámi í almennum bóklegum námsgreinum. Nemendur sem lokið hafa sveinsprófi/stúdentsprófi  geta jafnframt sótt um nám í vöruhönnun á háskólastigi.

f) MÓTUN TEIKNING og TEXTÍLL  er hvort um sig tveggja ára diplómanám. Til að hefja nám þarf umsækjandi að hafa lokið námi í framhaldsskóla eða sambærilegu, af listnáms- eða hönnunarbraut, eða verk / starfsnámi. MÓTUN, TEIKNING og TEXTÍLL er unnin í samstarfi við Myndlistaskólann í Reykjavík og er á verkstæðunum þar. Með því að bæta þriðja árinu við getur námið leitt til BA-honours gráðu. Þriðja árið er þá nám við erlendan háskóla. Í gildi er samningur við The University of Cumbria, en nemendum sem þegar hafa útskrifast úr diplómanáminu Mótun, hefur jafnframt gengið vel að komast inn í aðra listaháskóla í Evrópu. Námið er metið til 120 ECTS- eininga í samstarfsskólunum (www.knowhow.is og www.knowhow2.is ).

Í náminu er lögð áhersla á frjótt og skapandi verklag og þá margvíslegu möguleika sem felast í efnum og aðferðum textílgreina, teikningu og mótun í leir og tengd efni. Námsbrautirnar hafa verið þróaðar innan samstarfsverkefnisins KNOWHOW2, sem er verkefni innan Leonardo da Vinci áætlunar Evrópusambandsins. Horft er til framtíðar en aðferðir og hefðir fortíðar hafðar að leiðarljósi. Við uppbyggingu námsins í teikningu er m.a. unnið með tölvuleikjafyrirtækinu CCP og háskólanum i Cumbriu. Textílnámið er þróað í samvinnu við Steinunni Sigurðardóttur, fatahönnuð og háskóla í Noregi, Skotlandi og Danmörku og ráðuneyti menntamála á Íslandi.

Ein af þessum nýju námsbrautum, Mótun – leir og tengd efni, hóf göngu sína haustið 2007 og útskrifuðust fyrstu nemendurnir vorið 2009. Námið er tveggja ára fullt nám í samvinnu Tækniskólans og Myndlistaskólans og er metið jafngilt 120 ECTS eininga námi. 26 nemendur eru við nám í Mótun á vorönn 2010. 

  

Skólastjóri Handverks- og hönnunarskólans er Sigríður Ágústsdóttir  s. 514 9091, 8625513

Skólastjóri hefur viðtalstíma á skrifstofu, 4. hæð á Skólavörðuholti stofa nr. 416 á mánudögum og fimmtudögum frá  kl. 9:00-11:30

 

 

 

 

 

 

 

 

 

.






Tækniskólinn

Tungumál


 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica