Skóli atvinnulífsins
Miðannarmat

Miðannarmat

Á hverri önn fer fram miðannarmat í Tækniskólanum.  Nemendur svara spurningum um kennsluna í einstökum áföngum og kennarar gefa nemendum vitnisburð um stöðu þeirra í hverjum áfanga fyrir sig.  Vitnisburðurinn byggir fyrst og fremst á því námsmati sem þegar hefur farið fram í viðkomandi áfanga.

Vitnisburður á miðannarmati er gefinn í bókstöfum.
A = Ágætt.  Nemandanum gengur ákaflega vel. 
B = Í lagi. Nemandinn hefur tök á efninu en má ekki slá slöku við. 
C= Ábótavant. Nemandinn þarf að taka sig á til að ná áfanganum. 
X= Ekki forsendur til að gefa vitnisburð. 

Mikilvægt er að minna á að miðannarmatið er hvatning til þeirra nemenda sem fá C  að ganga af kappi í það að læra og leita aðstoðar hjá kennara eða námsráðgjafa til þess að skipuleggja námið í áfanganum.  Þeir sem fá B eru hvattir til að slá ekki slöku við og helst að bæta árangurinn enn frekar.  Þeir sem fá A eru hvattir til að halda áfram á sömu braut og gefa hvergi eftir.

 






Tungumál