fbpx
Menu

Nemendur

Gull- og silfursmíðanemi í Amsterdam

Birgir Freyr Jónsson nemandi í gull- og silfursmíði er úti í Amsterdam á vegum Era­smus+. Styrkir frá Erasmus veita nem­endum í starfs­mennta­skólum og nemum á samn­ingi tæki­færi til að fara í starfsnám hjá fyr­ir­tækjum í Evrópu. Námið/þ​jálf­unin verður síðan hluti af námi Birgis og metið sem slíkt að dvöl lok­inni.

Starfsnám á Erasmus+ styrk í Hollandi

Starfsnám Birgis er hjá Mio Sieraden gull- og silfursmíðaverkstæði sem er vel staðsett í Amsterdam. Námið og vinnan fer fram á verkstæðinu og í versluninni undir umsjón gullsmíðameistara. Hann fær að fást við margs konar viðgerðir með ýmsum málmum og gimsteinum og einnig vinna að mörgum verkefnum að beiðni viðskiptavina.

Birgir Freyr er ánægður með þetta tækifæri til starfsnáms í Hollandi og sendi okkur meðfylgjandi myndir af verkum sínum, verkstæðinu og frá Amsterdam. Með Era­smus+ styrk fara á hverju ári nem­endur og starfs­fólk í alþjóðleg verk­efni, erlendar heim­sóknir, starfsnám og skiptinám á vegum Tækni­skólans.

Verkefni frá nemendum

Starfsnám í húsgagnasmíði

Námssamningur í París

Til Danmerkur í Húsgagnabólstrun

Klára námið í Skive

Útskriftarverkefni

Útskriftarverkefni

Ferð til Frankfurt

Um jafnrétti fyrir alla