fbpx
Menu

Tækni­skólinn leggur áherslu á að tryggja að öll meðferð per­sónu­upp­lýs­inga sé í sam­ræmi við ákvæði laga um per­sónu­vernd og meðferð per­sónu­upp­lýs­inga. Markmið per­sónu­vernd­ar­stefn­unnar er að auðvelda ein­stak­lingum að átta sig á hvaða upp­lýs­ingum skólinn safnar, hvers vegna og hvað er gert við þær. Eins er því lýst hver er þinn réttur varðandi per­sónu­upp­lýs­ingar og hvert þú getur leitað ef þú óskar eftir upp­lýs­ingum eða ef þér þykir á þér brotið.

Persónuupplýsingar og meðferð þeirra

Þær persónuupplýsingar sem skráðar eru í Tækniskólanum hafa allar lagalegan eða þjónustulegan tilgang.  Persónuupplýsingar er varða nemendur eru allar til þess gerðar að veita nemendum þá þjónustu er þeir hafa lagalegan rétt til.

 

Tækniskólinn mun gera allt sem í hans valdi er til að tryggja að farið verði með ýtrustu gætni með persónuupplýsingar í skólanum og  að meðferð þeirra sé í samræmi við lög og reglur. Starfsmenn Tækniskólans eru bundnir þagnareið og ber skylda til að fara með persónuupplýsingar samkvæmt lögum og reglum.

 

Við höfum sett okkur nokkrar grundvallarreglur sem stjórna því hverning við meðhöndlum þínar persónulegar upplýsingar sem skulu vera:

  • Löglegar, sanngjarnar og réttar
  • Meðhöndlaðar af trúnaði og tryggðar gegn óheimilum breytingum
  • Vera skráðar í sérstökum tilgang og ekki síðar notaðar í öðrum óskyldum tilgangi
  • Vistaðar eins lengi og þörf er á eða lög gera kröfur um
  • Vera uppfærðar og aðgengilegar
  • Persónuupplýsingar séu aðeins notaðar í upprunalegum tilgangi og eru ekki afhentar öðrum nema að beiðni hlutaðeigandi, með ótvíræðu samþykki hans eða að skólanum beri lagaleg skylda til

Hvað eru persónuupplýsingar?

Persónuupplýsingar eru hvers kyns upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling. þ.e. upplýsingar sem á einhvern hátt má tengja við einstakling.

Hvaða persónuupplýsingar skráir eða geymir Tækniskólinn?

Til þess að gegna skyldum sínum og geta boðið nemendum skólans sem besta þjónustu þurfum við að skrá og meðhöndla persónulegar upplýsingar um þig bæði rafrænt og á pappír.

Tækniskólinn er í samstarfi við Advania sem er rekstraraðili Innu. Aðgangi að Innu er stýrt með persónulegum aðgangi og skal enginn hafa aðgang að persónuupplýsingum sem ekki hefur til þess heimild.  Heimildir til aðgangs að upplýsingum i Innu eru einskorðaðar við þá einstaklinga sem starfs síns vegna þurfa aðgengi að upplýsingum um nemendur, s.s. skólastjórar, kennarar, námsráðgjafar og þjónustuaðilar við nemendur.  Ekki hafa allir aðilar sama aðgang að upplýsingum, heldur aðeins aðgang að þeim upplýsingum sem aðilar þurfa til að geta sinnt þjónustu við nemendur.
Dæmi um persónuupplýsingar um nemendur sem Tækniskólinn skráir eða notar í starfseminni:

  • Nafn og kennitala nemenda
  • Heimilisfang nemenda
  • Netpóstfang nemenda
  • Símanúmer nemenda
  • Nafn forráðamanna
  • Netfang forráðamanna
  • Símanúmer forráðamanna
  • Mætingar nemenda
  • Verkefnaskil
  • Einkunnir
  • Upplýsingar um sérþarfir nemanda sem nemandi eða forráðamaður lætur skólanum í té.

Hvaðan koma upplýsingarnar?

Skráningar í Innu

Upplýsingarnar koma frá nemanda sjálfum, forráðamanni hans, skólastjóra, kennara, námsráðgjafa eða öðrum starfsmönnum skólans sem til þess hafa heimild.

 

Netpóstur

Ef þú sendir starfsmanni Tækniskólans tölvupóst varðveitist hann í tölvupóstkerfi skólans eins ef þú sendir skólanum ábendingu í ábendingakerfi skólans.

 

Upplýsingar um sérþarfir

Upplýsingar um sérþarfir nemanda koma frá nemanda eða forráðamanni hans.

 

Myndir

Mynd til birtinga á auglýsingaefni skólans, á heimsíðu hans eða á samfélagsmiðlum á vegum hans er aðeins birt að fyrirfram óyggjandi heimild frá nemanda og (ef við á) forráðamanni hans. Enda skal á jafn auðveldan hátt og heimildin var veitt vera hægt að draga hana til baka. Ætíð skal orðið við beiðni nemanda eða (ef við á) forráðamanni hans um að fjarlægja mynd af heimasíðu eða samfélagsmiðlum á vegum skólans. Undanþága frá kröfum um heimild til myndbirtinga er þegar hópmynd er tekin í skólanum eða á atburðum honum tengdum og enginn einn er fókus myndarinnar.  Nemandi og eða (ef við á) forráðamaður hans getur þó farið fram á að slíkar myndir verði fjarlægðar af vef skólans eða samfélagsmiðlum á hans vegum án þess að gefa upp ástæðu þess.

Tilgangur með skráningu persónuupplýsinga

Þær persónuupplýsingar sem skráðar eru í Tækniskólanum hafa allar lagalegan eða þjónustulegan tilgang.

Afhending upplýsinga til þriðja aðila

Tækniskólinn afhendir ekki þriðja aðila aðila upplýsingar um þig nema honum beri lagaleg skylda til, þú hafir óskað eftir því eða hafir fyrirfram gefið óyggjandi samþykki fyrir því. Slík samþykki skal vera hægt að afturkalla á eins auðveldar hátt og samþykkið var gefið.

Hver er þinn réttur?

Hver er þinn réttur?

  • Þú hefur rétt til þess að fá upplýsingar um allar þær persónulegu upplýsingar sem um þig eru skráðar hvort sem þær upplýsingar eru á rafrænu eða pappírsformi, hvaðan upplýsingarnar komi og til hvers þær eru notaðar.
  • Þú hefur rétt til að krefjast þess að rangar eða ófullkomnar skráningar verð leiðréttar
  • Þú getur farið fram á að ónauðsynlegum upplýsingum um þig verði eytt nema skólanum beri skylda til að varðveita upplýsingarnar samkvæmt lögum eða eyðing upplýsinganna á einhvern hátt brjóti á rétti annarrar persónu um persónuvernd

Þegar þú ferð fram á upplýsingar um skráningar um þig skal beiðnin vera skrifleg á þar til gerðu eyðublaði og vera þér að kostnaðarlausu. Umsóknina skal senda á netfangið [email protected]

Persónuverndarfulltrúi

Hjá Tækniskólanum er starfandi persónuverndarfulltrúi sem hefur það hlutverk að að upplýsa starfsmenn um þeirra um skyldur samkvæmt persónuverndarlögum, sinna þjálfun starfsfólks, framkvæma úttektir, veita ráðgjöf og vera til staðar komi upp álitaefni á sviði persónuverndar. Persónuverndarfulltrúi tekur jafnframt á móti fyrirspurnum og beiðnum frá þeim einstaklingum sem verið er að vinna með upplýsingar um. Þá skal persónuverndarfulltrúinn vera tengiliður við Persónuvernd og vinna með henni, sem og fylgjast með því að farið sé að persónuverndarlögum. Persónuverndarfulltrúi Tækniskólans er Lilja Guðný Jóhannesdóttir og hægt er að hafa samband við hana í síma 514 9033 eða senda tölvupóst á [email protected]

Eftirlitsaðili

Persónuvernd annast eftirlit með framkvæmd laga um persónuvernd, reglugerða og sérákvæða í lögum sem fjalla um vinnslu persónuupplýsinga. Sérhver skráður einstaklingur eða fulltrúi hans hefur rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef hann telur að vinnsla persónuupplýsinga um hann brjóti í bága við lög eða reglugerð. Persónuvernd úrskurðar um hvort brot hafi átt sér stað. Frekari upplýsingar um persónuvernd er að finna á vef stofnunarinnar personuvernd.is

Spurningar

Hafðu samband og við svörum þér um hæl!

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.