Ef þú óskar eftir sérúrræði í prófum sem lýtur að leserfiðleikum eða öðrum námserfiðleikum.
Áhersla er lögð á að veita nemendum þá aðstoð sem þeir þurfa til að geta sinnt námi sínu sem best.
Þeir nemendur sem óska eftir sérúrræði í prófum sem lýtur að leserfiðleikum eða öðrum námserfiðleikum, fá 30 mínútum lengri próftíma. Þeir skrá umsókn um sérúrræði í Innu og skila jafnframt inn gögnum til skrifstofu skólans.
1. Almenn sérúrræði: Umsókn sem fylgir nemandanum á meðan hann er í skólanum, og er því nægjanlegt að fylla út einu sinni. Skráningar hér virka fyrir alla áfanga sem nemandi er skráður í.
2. Sérúrræði tengd áfanga: Umsókn aðeins virk fyrir áfanga núverandi annar. Hér er eingöngu nauðsynlegt að skrá sértæk úrræði, almenn skráning virkar fyrir alla áfanga.