Reglulega er gerð úttekt á skólasókn nemenda. Nemendur sem ekki fylgja reglum um skólasókn fá senda áminningu í gegnum Innu. Við endurtekin brot á reglum um skólasókn áskilur skólinn sér rétt til að vísa nemandanum úr skólanum.
Hægt er að veita undanþágu á skólasóknarreglum fyrir afreksfólk í samræmi við kafla 16.2 í aðalnámskrá. Nemandi sem hyggst nýta sér undanþágu skal skila inn viðeigandi gögnum til viðkomandi skólastjóra.
• 97–100% eink. 10 – 1 ein.
• 94–96,9% eink. 9 – 1 ein.
• 91–93,9% eink. 8 – 0 ein.
• 88–90,9% eink. 7 – 0 ein.
• 84–87,9% eink. 6 – 0 ein.
• 80–83,9% eink. 5 – 0 ein.
• 75–79,9% eink. 4 – 0 ein.
• 70–74,9% eink. 3 – 0 ein.
• 65–69,9% eink. 2 – 0 ein.
• Minna en 65% eink. 1 – 0 ein.
Hér er að finna upplýsingar um hvernig nemendur/aðstandendur skrá veikindi eða forföll.
Nemendum sem eiga við langvinna eða þráláta sjúkdóma að stríða eða verða fyrir áföllum sem hamla skólagöngu þeirra á önninni er bent á að ræða við námsráðgjafa.
Þeir nemendur sem ekki geta stundað íþróttir verða að skila vottorði til íþróttakennara innan viku frá afhendingu stundaskrár, sjá nánar um íþróttir