fbpx
Menu

Innsýn í námið

Með þessu námi færðu réttindi til að gegna stöðu yfirvélstjóra og 1. vélstjóra á skipum með ótakmarkað vélarafl (STCW III/2) (að loknum siglingatíma). Þetta námsstig veitir þér réttindi til starfsheitisins vélfræðingur. Betri undirbúningur undir nám á háskólastigi í tæknigreinum, bæði hérlendis og erlendis, er vandfundinn.

Námið er viðbót við nám til C-réttinda og getur hafist þegar nemendur eru langt komnir með að ljúka því námi. Námið er á fjórða þrepi og því á fagháskólastigi. Námið er bóknám með verklegu ívafi og er kennt í Reykjavík (Háteigsvegi). Meðalnámstími í skóla er 2 annir. Innritað er í námið á haustönn.

Mögu­lega getur í ein­stökum áföngum verið nám með vinnu (dreifnám – fjarnám með staðlotum) í boði.

Sjá áfanga- og annarskipulag á námsskipulagssíðu.

Brautarlýsing

VD20 Vélstjórn D - vélstjórnarréttindi (Vélfræðingur sbr. STCW-REG. A-III/2)

Vélstjórnarnám skiptist í meginatriðum í sex námsstig sem að námi loknu veita hvert um sig, að öðrum skilyrðum uppfylltum, rétt til að fá útgefið skírteini til starfa sem vélstjóri. Þessi braut er til sjötta námsstigs, enda hafi nemandi lokið fimmta námsstigi. Sjötta námsstig (réttindi D) er til að gegna stöðu yfirvélstjóra og 1. vélstjóra á skipum með ótakmarkað vélarafl (STCW III/2). Þetta námsstig er jafnframt nám í kælivélavirkjun og veitir réttindi til starfsheitisins vélfræðingur. Í náminu öðlast nemendur einnig viðeigandi menntun og þjálfun þannig að þeir geti sinnt vélstjórnarstörfum í landi, t.d. á sviði orku- og veitufyrirtækja og í iðnaði.

Almennar upplýsingar

Inntökuskilyrði

Námsupphaf brautar miðast við að nemandi hafi lokið námi til C-réttinda vélstjórnar skv. nýrri námskrá (frá 2017) eða sé langt kominn með það nám.

Að loknu námi

Þú öðlast rétt til að fá útgefið atvinnuskír­teini sem ýmist vélavörður, undirvélstjóri, 1. vélstjóri eða yfirvélstjóri að loknum sigl­inga­tíma og örygg­isfræðslu – fyrir þetta réttindastig (D) geta réttindin verið yfirvélstjóri á skipi með vélarafli að 750 kW, undir- og yfirvélstjóri á skipi með vélarafli að 3000 kW,  1. vélstjóri og yfirvélstjóri á skipi með vélarafli að 1500 kW, eða undirvélstjóri, 1. vélstjóri og yfirvélstjóri á skipi með ótakmarkaðri vélarstærð. Þetta námsstig veitir þér réttindi til starfsheitisins vélfræðingur.

Námið fullnægir þeim kröfum sem gerðar eru til bóknáms til að öðlast skírteini STCW III/2 samkvæmt alþjóðasamþykkt.

Umsagnir

Valdimar Árnason lauk námi í flugvirkjun

Í byrjun árs 2017 var komið að því, ég ætlaði að gera eitthvað meira en bara vinna. Mig langaði að gera eitthvað sem ég hafði virkilega áhuga á. Var búinn að velta þessu fyrir mér í kannski tvö ár og svo sá ég auglýsingu á Facebook fyrir flugvirkjanám Tækniskólans. Auglýsingin poppaði auðvitað upp á mínum skjá því ég hef haft brennandi áhuga á flugvélum síðan ég var 4 ára og er með fullt að flugvélatengdum síðum á Facebook.

Ég sé ekki eftir að hafa sótt um þetta sérnám því ég kynntist fólki frá öllum stéttum samfélagsins. Fólk sem hafði mismikinn áhuga en vildi gera það sama og ég, finna sér eitthvað sem væri öðruvísi en þau höfðu verið að vinna við. Gaman var að fylgjast með þeim öllum fá aukinn áhuga fyrir þessum tækjum háloftanna með mér.

Námið er skemmtilegt og mjög fjölbreytt en á köflum ansi strembið og voru flestir kennararnir mjög færir að einfalda efnið fyrir manni. Það sem ég tek úr þessu er auðvitað námið og kunnátta mín að leysa vandamál en þessi  tvö ár með bekkjarfélögunum stendur upp úr. Tveir mánuðir fyrir norðan á Akureyri í verklegu námi virkilega þéttu hópinn og er maður heppinn að hafa eignast svona marga vini.

Sigurður fór í nám í verkfræði í Háskólanum eftir nám í Véltækniskólanum.

„Fjölbreytnin í náminu er góður grunnur. Ég finn að ég stend betur að vígi en margir sem eru með mér í verkfræðináminu hér í Háskólanum.“

Rafnar Snær Baldvinsson lauk námi í vélstjórn

Vélstjórnarnámið er mjög fjölbreytt, inniheldur mikið af nytsamlegum upplýsingum og hefur frábæra kennara sem miðla þekkingu eins og þeim einum er lagið. Þetta nám opnar margar dyr og gerir að verkum að það er fátt sem að flækist fyrir manni í framtíðinni. Ég mæli eindregið með þessu námi ef að þú ert forvitin/n um virkni hluta og/eða viðgerðir.

FAQ

Spurt og svarað

Þarf ég að eiga öryggisfatnað?

Þú þarft að koma með eiginn öryggisskó, hlífðargleraugu og heyrnahlífar sem skylt er nota í verklegu námi skólans og við aðra vinnu þar sem kennarar krefjast þess að nemendur noti hlífðarbúnað.

Hvar vinna útskrifaðir nemendur úr Véltækniskólanum?

Vélstjórar og vélfræðingar starfa m.a. í verksmiðjum, á skipum, í orkuverum og þar sem gerðar eru kröfur um víðtæka þekkingu á vél- og tæknibúnaði. Vélstjórnarnám veitir réttindi til atvinnu um allan heim á skipum af öllum stærðum og gerðum, við fiskveiðar, flutninga eða á stærstu farþegaskipum.

Hvar er vélstjórn kennd?

Dagnámskennsla í Véltækniskólanum í Reykjavík fer að mestu fram í Sjómannaskólanum Háteigsvegi og í Hafnarfirði (Flatahrauni og Gjótuhrauni). Efri áfangar í náminu eru eingöngu kenndir á Háteigsvegi.

Hvað kostar nám í vélstjórn?

Fyrir dagnámið er greitt fast gjald fyrir eina önn í einu, sjá gjaldskrá Tækniskólans. Fyrir áfanga í dreifnámi er greitt einingagjald fyrir sérhvern áfanga og eitt skráningargjald á umsókn.

Er nemendafélag?

Í Tækni­skól­anum er öflugt og fjöl­breytt félagslíf. Innan hvers skóla er starf­andi skólafélag sem heldur utan um félagslíf skólans, klúbba, keppni innan og utan skólans og aðrar uppá­komur. Þannig hafa nem­endur í vélstjórn á Háteigs­vegi með sér félag sem heldur uppi félags­lífi. Nem­endur sjá sjálfir um að móta, þróa og byggja upp þetta starf.

Net­fang félagsins er [email protected].

Saman mynda skólafélög í Tækni­skól­anum Nem­enda­sam­band Tækni­skólans, NST.

Er nám úr öðrum skólum metið, t.d. áfangar eða stúdentspróf?

Já, almennir framhaldsskólaáfangar eru almennt metnir og einhverjum tilvikum nám úr háskólum og sérskólum sem tengjast fagáföngum námsins (fagáfangar). Sjá nánar hér.

Er hægt að fá áfanga metna í raunfærnimati?

Já, þeir sem hafa náð 23 ára aldri og hafa 3 ára starfsreynslu í faginu geta sótt um að fara í raunfærnimat, en það nær fyrst og fremst til fyrstu áfanga (kenndir á A, B og mögulega C stigi). Sjá nánar hér.

Spurningar

Hafðu samband og við svörum þér um hæl!

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!