fbpx
Menu

Fréttir

08. janúar 2021

Tækniskólinn í 16 liða úrslit Gettu betur

Tækniskólinn mætir Menntaskólanum á Laugarvatni í 16 liða úrslitum Gettu betur.

Keppnin fer fram kl. 20:40 miðvikudaginn 13. janúar og verður í beinni útsendingu á Rás 2.

Með sigri getur Tækniskólinn tryggt sér sæti í 8 liða úrslitum annað árið í röð og annað árið í sögu skólans.

Á vef RÚV má sjá allar keppnirnar sem fram fara í 16 liða úrslitunum.