fbpx
en
Menu
en

Fréttir

19. janúar 2020

Nýnemakynning

Nýnemakynning

Kynningarfundur mánudag 20. janúar

Kynningarfundur fyrir nýnema og foreldra/​forráðamenn í matsal skólans á Skólavörðuholti. Á fund­inum verður farið yfir ýmis atriði sem mikilvægt er að vita m.a. upplýsingar um stoðþjónustu, félagslíf og Innu. Kynningin hefst kl. 17:30 og tekur um eina klukkustund.

Dagskrá

  • Kynning á Tækniskólanum
    • Hildur Ingvarsdóttir skólameistari
  • Inna – upplýsingakerfi framhaldsskólanna
    • Guðrún Randalín aðstoðarskólameistari
  • Stoðþjónusta fyrir nemendur og forvarnarstarf
    • Þórdís Guðmundsdóttir náms- og starfsráðgjafi
    • Benedikt Bragi Sigurðsson sálfræðingur
    • Guðlaug Kjartansdóttir forvarnarfulltrúi
  • Félagslíf og viðburðir
    • Þorvaldur Guðjónsson félagsmálafulltrúi

Kaffi, kleinur, ávextir og sódavatn verða á boðstólnum.

Allir nýnemar og foreldrar/​forráðamenn eru hjartanlega velkomin.