Skrifstofan á Skólavörðuholti er opin:
mánudaga 10:00-15:00
aðra virka daga 08:00-15:00
sími 514-9000
Bókasafnið í Hafnarfirði 2. hæð er opið:
mánudaga 10:00–16:00
þriðjudaga-fimmtudaga 08:10–16:00
föstudaga 08:10–15:00
sími 514-9027
Bókasafnið á Háteigsvegi 4. hæð er opið:
mánudaga 10:00–16:00
þriðjudaga-fimmtudaga 08:10–16:00
föstudaga 08:10–15:00
sími 514-9026
Bókasafnið á Skólavörðuholti 5. hæð er opið:
mánudaga 10:00–16:00
þriðjudaga-fimmtudaga 08:10–16:00
föstudaga 08:10–15:00
sími 514-9021
Bókasafn og skrifstofa eru upplýsingadeild skólans. Allir nemendur eiga rétt á að njóta þar faglegrar bókasafns- og upplýsingaþjónustu. Á bókasafninu í Hafnarfirði og á Háteigsvegi fá nemendur upplýsingar eins og á skrifstofu.
Hlutverk: Meginhlutverk bókasafnsins er að veita nemendum og starfsmönnum greiðan aðgang að upplýsingum og heimildum vegna náms og kennslu.
Þjónusta: Á safninu er veitt fjölþætt og persónuleg þjónusta og því er ætlað að styðja nám og kennslu við skólann:
Kennslubækur: Allar kennslubækur sem eru á leslistum nemenda eru til á bókasafninu. Þær er hægt að fá lánaðar í kennslustund eða lesa á staðnum. Kennslubækur eru ekki til heimaláns.
Á bókasafni má fá leiðbeiningar sem nemendur geta notað við ritgerðaskrif.
Þær eiga helst við um lokaverkefnisgerð en má einnig nota við styttri ritgerðir.
Við vekjum athygli á því að nemendur skólans fá ársaðgang að Snöru heim á aðeins 990 kr. ef þeir skrá sig inn með Microsoft-innskráningu og skólanetfangi.
Ritgerðarskrif – að skrifa ritgerð.
Heimildaskráning – heimildaskrá skv. APA kerfi.
Heimildaskráning – heimildaskrá skv. Chicago Manual of Style
Tenglasafn - heimildir og orðabækur á netinu
Eitt kort sem virkar bæði sem prentkort og aðgangskort.
Nú geta nemendur sótt um prentkort á netfangið [email protected] Þeir sækja svo kortin á bókasöfnin og greiða 500 kr.
Prentun: Ef þú vilt prenta eða ljósrita í skólanum þarftu að eiga prentkort eða borga uppsett verð á bókasöfnunum.
Kortin kosta 500 kr. en það kostar 2.000 kr. að endurnýja glatað kort.
Ef þú átt prentkort getur þú fengið leyninúmer til að nota á prentarana í stað kortanna hjá starfsfólki bókasafnanna.
Lesstofur og tölvuver eru á bókasöfnunum. Einnig er aðstaða til að prenta út og skanna inn.
Nemendur geta sótt um rafrænan aðgang að lesrými á Háteigsvegi ef þeir vilja notfæra sér aðstöðuna eftir lokun bókasafnsins.