Steinlagna- og umhirðutækni
Opið er fyrir skráningu á námskeið í steinlagnatækni sem hefst í janúar 2010 ef næg þátttaka fæst. Kennt er mán., þri. og miðvikudaga frá kl. 17:10 - 21:40, einnig nokkra laugardaga.
Kennsla fer fram í Skeljanesi 9, Skerjafirði.
Nám í steinlagna og umhirðutækni er mótað og uppbyggt af Félagi skrúðgarðyrkjumeistara og Horticum menntafélagi ehf. í samstarfi við Tækniskólann, skóla atvinnulífsins.
Náminu er ætlað að koma til móts við kröfur atvinnulífsins um þekkingu og hæfni almennra starfsmanna sem sinna gróður- og yfirborðsvinnu, ásamt því að mæta væntingum nemenda um vandað starfsnám á þessu sviði.
Skipulag náms
Náminu er skipt í tvo hluta þar sem annars vegar er lögð áhersla á steinlagnir og hins vegar áhersla á umhirðu svæða. Nemendur geta valið einn eða fleiri hluta, allt eftir óskum og þörfum. Hér er námsskrá námsins og drög að stundaskrá.
Hver lota kostar 85.000 kr. Fyrirtæki geta sótt um styrk til fræðslusjóða atvinnulífsins v/starfsmanna sinna. Einstaklingar geta sótt um styrk til stéttarfélags síns.
Inntökuskilyrði
Umsækjendur þurfa að hafa starfsreynslu á fagsviði skrúðgarðyrkju. Þeir þurfa einnig að hafa lokið skyldunámi í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla eða hafa aðra sambærilega reynslu.
Allar nánari upplýsingar um námið fást hjá www.horticum.is og Endurmenntunarskólanum í s. 514 9602 eða með fyrirspurnum á netfangið endurmenntun@tskoli.is
