Rekstur og stjórnun í atvinnulífinu - hagnýtt framhaldsnám í samstarfi við Háskólann í Reykjavík
Umsóknir og innritun!
Opið er fyrir umsóknir og hægt að sækja um. Vistið umsóknina og sendið á ave@tskoli.is eða prentið og sendið Tækniskólanum.
Innritun fer fram undir INNRITUN - dreifnám á www.tskoli.is þ.e. veljið Tækniakademía - dreifnám á eftirfarandi slóð https://www.inna.is/innritun/school.jsp?school=1102.
Nánari upplýsingar um námið fást í síma 514 9601 eða með fyrirspurnum á netfangið ave@tskoli.is
Fyrir hverja?
Námið hentar vel öllum faglærðum sem hafa reynslu úr atvinnulífinu, svo sem í sjávarútvegi, flugrekstri, iðngreinum og öðrum atvinnugreinum. Námið er krefjandi og gerir sömu námskröfur og eru gerðar á háskólastigi en boðið er upp á sveigjanleika í skipulagningu og skilum á verkefnum nemenda.
Boðið er upp á fornámskeið í stærðfræði, bókfærslu og námstækni í upphafi námsins. Gert er ráð fyrir að nemendur séu tölvufærir og geti lesið námsefni á ensku.
Forkröfur
- Umsækjendur í útvegsrekstrarfræði þurfa að hafa lokið 3. stigi vélstjórnar- eða skipstjórnar
- Umsækjendur í flugrekstrarfræði þurfa að hafa lokið atvinnuflugmannsnámi eða vera með stúdentspróf og a.m.k. 2ja ára starfsreynslu í atvinnugreininni.
- Umsækjendur um almennt nám í rekstri og stjórnun þurfa að hafa lokið starfsmenntun eða sambærilegri menntun og hafa reynslu úr atvinnulífinu.
Að loknu 46 ein. námi af einhverri ofangreindra þriggja námslína geta nemendur bætt við sig 15 ein. og lokið rekstrarfræði til 61 ein.
Námstilhögun
Námið er sett saman af námsgreinum sem snerta rekstur og atvinnulíf og skiptast þær í kjarnagreinar og sérsvið.
Kjarnagreinar, sem allir taka, eru hagnýt stærðfræði, rekstrarfræði, þjóðhagfræði, fjárhagsbókhald, fjármál, markaðsfræði, verkefnastjórnun, framleiðslustjórnun, mannauðsstjórnun, lögfræði og tryggingar.
Sérsvið tengjast viðkomandi línu og atvinnugrein og eru sérsviðsnámsgreinarnar fjórar, ein á hverri önn.
- Útvegsrekstrarfræði - 46 ein. + 15 ein. viðbótarnám í rekstrarfræði = 61 ein.
- Flugrekstrarfræði - 46 ein. + 15 ein. viðbótarnám í rekstrarfræði = 61 ein.
- Almennt nám í rekstri og stjórnun - 46 ein. + 15. ein. viðbótarnám í rekstrarfræði = 61 ein.
Kennslutilhögun - fjarnám og staðbundnar lotur
Hægt að hefja nám hvenær sem er vor og haust á fyrri önnum námsins.

