Skóli atvinnulífsins
Fréttir
tsk

Upplýsingar um innritun

Innritun í dagskóla og dreifnám (áður kvöld- og fjarnám). Athugið sérreglur  varðandi innritun í Margmiðlunarskólann, sérnám í ljósmyndun, fataiðnbraut, umsóknir í gull- og silfursmíði og diplómanám í MÓTUN, TEIKNINGU OG TEXTÍL

 

Nám í dagskóla

Öll innritun í nám í dagskóla er í gegnum menntagátt.

Nemendur sem eru að ljúka grunnskóla geta endurskoðað val á skóla frá 7. - 11. júní 2010 

Umsóknir sem bárust fyrir 30. apríl eru í vinnslu. Umsækjendur um skólavist í Tækniskólanum haustið 2010 geta séð stöðu umsókna á innritunarvef menntagáttar.  

 Helstu merkingar umsókna í innritun eru: 

Stað umsókna: Merkir:
Í vinnslu Umsókn er í athugun
Samþykkt Umsókn er samþykkt og afgreidd
Samþykkt, í bið Umsókn er samþykkt en óafgreidd
Hafnað, í bið Umsókn á aðalbraut hafnað en umsókn á varabraut óafgreidd
Hafnað Umsókn hafnað


Umsóknir sem verða í stöðunni „Í vinnslu“ mánudaginn 10. maí verða afgreiddar í júní. 

Frá 3. maí  er tekið við umsóknum á biðlista eitt sem verða afgreiddar 1. júní.
Frá 1. til 15. júní er tekið við umsóknum á biðlista tvö og verða þær umsóknir afgreiddar eftir innritun grunnskólanema 20. júní.

 

Dreifnám (áður kvöld- og fjarnám) og Meistaraskólinn

Innritun frá 1. júní til 9. ágúst.  Innritunin fer fram hér á síðunni undir INNRITUN.

Dreifnám (áður kvöldnám og fjarnám) Tækniskólans, skóla atvinnulífsins. 

Innritun í dreifnám Tækniskólans hefst 1. júní, (Meistaraskólinn og nám annarra undirskóla). Dreifnámið kemur í stað þess sem áður var kvöld- og fjarnám. Kennslan fer fram á námsneti skólans með staðbundnum lotum þar sem nemendur mæta og hitta sinn kennara. Hlutfall staðbundins náms fer eftir eðli áfangans þannig að í verklegu námi verður stærsti hlutinn í staðbundnu námi en í bóklegum greinum er stærsti hlutinn kenndur á námsnetinu.

Með þessari breytingu sameinast kvöldnám og fjarnám í dreifnám.

 

Gjaldskrá dreifnáms:

Innritunargjald       12.000 
 Einingar 1 til 10 7.500 á einingu 
 Einingar umfram 10   6.000 á einingu

Innritun í dreifnám 

 

Umsóknir í Margmiðlunarskólann

Umsóknir í Margmiðlunarskólann fara í gegnum menntagátt. Innritað er frá 12. til 29. apríl. Frá 3. maí til 15. júní verður tekið við umsóknum á biðlista.
Umsækjendur eru beðnir um að skila prófskírteinum í viðhengi með umsókn. Einnig er óskað eftir að umsækjendur sendi með portfolio, þ.e. safn af eigin verkefnum, hugmyndum og öðru slíku. Þetta getur t.d. verið sett saman í videoform og senda má hlekk á youtube.com, einnig er hægt að skila gögnum á skrifstofu Tækniskólans, Skólavörðuholti, á skrifstofutíma. Sjá má nánari upplýsingar um námið á vef Margmiðlunarskólans.

 

Innritun í sérnám í ljósmyndun

Nemendur sem sækja um sérnám í ljósmyndun þurfa að skila 15 ljósmyndum á diski með umsókninni. Diskinum skal skila á skrifstofu skólans á Háteigsvegi eða Skólavörðuholti fyrir 1. maí. Athugið að merkja hann vel, þ.e. nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang.

Innritað er í gegnum menntagátt frá 12. til 29. apríl. Ekki er tekið við umsóknum á biðlista.

 

Innritun í nám á fataiðnbraut

Sjá nánar hér.

Innritað er í gegnum menntagátt frá 12. apríl til 7. maí. Ekki er tekið við umsóknum á biðlista.

 

Innritun í nám í gull- og silfursmíði

Umsóknir um nám í Gull- og silfursmíði fara um menntagátt  frá 12. til 29. apríl.  Athugið nánari upplýsingar um umsóknir á vef Hönnunar- og handverksskóla Tækniskólans, sjá nánar hér.

 

Diplómanám í MÓTUN, TEIKNINGU eða TEXTÍL

ATH. umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 9. júní

Diplómanámið er samstarfsverkefni Tækniskólans og Myndlistaskólans í Reykjavík. 

MÓTUN - Námskrá

TEIKNING - Drög að námskrá

TEXTÍLL - Drög að námskrá

Athugið að bæði þarf að innrita sig inn á menntagátt og skila umsókn til Myndlistaskólans í Reykjavík. 

Innritað er í gegnum menntagátt  frá 12.apríl  til 9. júní.

  • Jafnframt skulu umsækjendur útfylla sérstakt umsóknareyðublað (á pdf formi) sem berist skrifstofu Myndlistaskólans í Reykjavík, Hringbraut 121, ásamt ljósmyndum af verkum og skissubók,  fyrir 31. maí 2010. Umsóknum verður svarað í júní.

Umsóknareyðublöð eru 4 síður sem umsækjendur prenta, fylla út og senda í pósti eða skila á skrifstofu Myndlistaskólans í Reykjavík, Hringbraut 121, 2. hæð, 107 R. ásamt staðfestingum um námsferil. Ekki er tekið á móti umsóknum rafrænt. Einnig er hægt að sækja umsóknareyðublað á skrifstofu Myndlistaskólans- eða fá sent í pósti. 

Inntökuskilyrði gera ráð fyrir að umsækjandi hafi lokið námi á list, - hönnunar-  eða starfsnámsbraut framhaldsskóla.

 

Endurmenntunarskólinn

Opið er fyrir umsóknir um nám í eftirtöldum námslínum.

lýsingarfræði,

flugrekstrarfræði,

útvegsrekstrarfræði,

almenn lína í rekstri og stjórnun.

 

Hafið samband við Endurmenntunarskólann, ave@tskoli.is


 






Tækniskólinn

Tungumál