Skóli atvinnulífsins
Fréttir
tsk

Nemendur Tækniskólans til fyrirmyndar

Fimmtudaginn 11. febrúar kom lögreglan  ásamt tollgæslumönnum í heimsókn í Tækniskólann  að beiðni skólans  til að skima eftir fíkniefnum. 

 Á síðasta ári hafði skólinn fyrst samband við þessi embætti og óskaði eftir samstarfi  um slíka heimsókn. Um síðustu jól  var gerð forkönnun í skólahúsinu af hálfu lögreglu og tollgæslu  þar sem farið var með hunda um skólann. Ekkert fannst í þeirri heimsókn en ákveðið að skima húsið aftur þegar nemendur og starfsmenn væru komnir til starfa eftir frí. 

Skimunin nú var gerð í húsnæði skólans að Skólavörðuholti í hádegishléi.  Allir inngangar voru vaktaðir af starfsmönnum og nemendum og starfsmönnum bent að fara út um aðalinnganginn. Þar var öllum heimilt að fara inn og út.  Forvarnarfulltrúi skólans var ásamt lögregluþjóni með  hund  við þann inngang. 

Á þessum tíma voru nemendur ýmist í kennslu, í matsal eða á göngum skólans. Ferðafrelsi um skólann var ekki hindrað á nokkurn hátt. Ekki er því rétt sem haldið hefur verið fram að nemendum hafi verið meinaður aðgangur að skólanum eða verið lokaðir inni á meðan að skimunin fór fram. Engin fíkniefni fundust á nemendum skólans, en  höfð voru afskipti af nokkrum nemendum sem  vísbendingar voru um að kynnu að hafa komist í snertingu við fíkniefni og voru þeir teknir í viðtal. Rétt er að leggja áherslu á að ekki var leitað á nemendum í þessu samhengi en þeir beðnir um að tæma vasana. 

Skólinn leggur áherslu á að notkun, dreifing og meðhöndlun fíkniefna er bönnuð innan skólans og gerir allt sem hann getur til að tryggja það í þágu nemenda og forráðamanna þeirra. Fyrst og fremst er um forvarnir  að ræða innan skólans. Þetta er í fyrsta sinn sem aðgerð sem þessi er gerð í Tækniskólanum, en sambærilegar aðgerðir hafa verið gerðar í öðrum framhaldsskólum. 

Á meðan tollgæsla og lögregla voru að störfum í húsinu var öllum foreldrum nemenda yngri en 20 ára sendur tölvupóstur  þar sem sagt var frá því að fíkniefnaleitarhundar væru í skólanum og framkvæmd þessarar aðgerðar skýrð.   Fjölmargir foreldrar hafa haft samband við skólann og þakkað sérstaklega fyrir hvernig staðið var að málum. Skólastjórnendur vilja þakka lögreglu og tollgæslu og fulltrúum barnaverndar  fyrir gott samstarf. 

Skólastjórnendur fagna þeirri umræðu sem orðið hefur í samfélaginu um forvarnir og fíkniefnaskimun  í skólum og á opinberum stöðum.  Einnig vonast skólinn til þess að skoðun umboðsmanns Alþingis leiði til þess að skýrt verði kveðið á um heimildir lögreglu og tollvarða í vinnu sem þessari.

Ákvörðun menntamálaráðherra  um að málið verði til umræðu á vettvangi skólastjórnenda er sérstakt fagnaðarefni. 

Stjórnendum Tækniskólans eru mjög annt um velferð nemenda sinna og orðspor skólans. Neysla fíkniefna er bölvaldur sem skólinn vill forða nemendum sínum frá. Í þeim tilgangi einum var gripið til fíkniefnaskimunar í skólanum. Tækniskólinn mun hér eftir sem hingað til berjast gegn fíkniefnanotkun nemenda. Beitt verður þeim ráðum sem best eru talin duga og mun skólinn hlusta vel eftir ráðleggingum og hugmyndum yfirvalda menntamála, lögreglu, barnaverndaryfirvalda og annarra sem gerst þekkja til í forvarnarstarfi.

 

 

 






Tækniskólinn

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica