Skóli atvinnulífsins
Fréttir
Nemendur Tækniskólans sem fengu viðurkenningu Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík

Útskriftarhátíð nýsveina

8.2.2010

 

Árleg útskriftarhátíð nýsveina sem Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík stendur fyrir, var haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn 6. febrúar sl. Hátíðin var hin glæsilegasta. Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, flutti hátíðarræðu, forseti borgarstjórnar, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, ávarpaði samkomuna og forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti nýsveinum viðurkenningar.  Einnig var útnefndur iðnaðarmaður ársins, orgelsmiðurinn frá Stokkseyri, Björgvin Tómasson.

Alls fengu 18 sveinar viðurkenningu og þar af voru níu nemendur útskrifaðir frá Tækniskólanum, skóla atvinnulífsins. Við erum stolt af þessum nemendum okkar og óskum þeim til hamingju.

 

Sjá einnig frétt á mbl.is






Tækniskólinn

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica