Skóli atvinnulífsins
Fréttir
Prentstýringar

Prent- og aðgangskort

8.1.2010

Prentkortin eru pöntuð og afgreidd á bókasöfnum skólans. Ef inneign er ekki á kortinu þarf að láta vita af því, t.d. á bókasafninu og því verður komið áleiðis til kerfisstjóra.

Uppsetningu á prentaraviðmóti fyrir er lokið og leiðbeiningum um notkun prentskipana og prentaranna sjálfra komið á framfæri eins fljótt og hægt er.

ATH!! Nú er eina leiðin til að prenta út sú að vera skráð/ur inn á tölvuna á TSnúmerinu og nota kortið í prentarana sem er tengt við það númer

Ekki er þörf á leyninúmeri fyrir prentkortin. Notkun þeirra sem aðgangskort verður kynnt síðar.

 

Kortin kosta 500 kr. en það mun kosta 2.000 kr. að endurnýja glatað kort.Prentkort-framhlið

Á síðustu vikum hafa fjölmargir nýir prentarar verið settir á ganga skólans. Til að nálgast prentverk í prenturum eða til að ljósrita á fjölnotavélum þurfa nemendur að hafa auðkenniskort, annars geta þeir ekki sótt þau verk sem þeir hafa prentað út. Kortinu fylgja a.m.k. 100 prenteiningar, sumar brautir fá fleiri einingar. A4 svart/hvítt er 1 prenteining en A4 í lit er 2 prenteiningar  A3 svart/hvítt er 2 einingar og A3 í lit er 4 einingar.

Til þess að eignast kort og koma prenthluta þeirra í gagnið, þarf að framkvæma tvennt:

  1. Nemendur sækja um prentkort á bókasöfnum eða á skrifstofum og greiða þar 500 kr. Þar er valið hvort sækja á kortið á bókasafn skólans á Háteigsvegi eða Skólavörðuholti, þar sem þau verða tilbúin eftir 2-3 daga.
  2. Þegar kortið er komið í hendur nemanda þarf hann virkja það. Það er gert með því að fara á þessa síðu: Prentkort-bakhliðhttp://prentkort.tskoli.is/.Til að komast inn á síðuna þarf að "treysta" henni með því að velja "Continue to this website" í Internet Explorer eða "Add Exception" í Firefox. Þar skráir nemandi sig inn með tölvuaðgangi sínum, TS+nemendanúmer og leyniorðinu að Innunni, velur Pin Management og slær þar inn 5 stafa tölu sem er aftan á kortinu, sjá mynd til hægri (12345). Með því að fara í "Back to account status" ætti að sjást hve mikil inneign er á kortinu. Alltaf er hægt að skoða inneignina á þessari síðu.

Til að prenta út þarf að hafa eftirfarandi í huga:

  • Ekki er hægt að senda beint á ákveðinn prentara eins og áður var og ekki er hægt að prenta út af aðganginum nemond.Prentstýringar
  • Að vera skráður inn í tölvuna á TSnúmeri þess sem ætlar að sækja útprentunina. Það er ekki hægt að sækja útprentun nema á korti þeirrar/þess sem skráð/ur er í tölvuna!
  • Að velja eina af þremur prentstýringum eftir því hvað er verið að prenta út.





Tækniskólinn

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica