Skóli atvinnulífsins
Fréttir
Íslenskunemar við minnismerki um Bárð Snæfellsás

Ferð á söguslóðir Bárðarsögu Snæfellsáss

 

Mánudaginn 23. nóvember sl. héldu 40 nemendur í íslensku 102 ásamt þremur kennara sinna í ferð á slóðir Bárðar Snæfellsáss. Eftir stutt stopp í Borgarnesi var ekið sem leið lá út á Snæfellsnes.

Á Djúpalónssandi reyndu hraustustu nemendurnir sig við steinana Fullsterkan og Hálfsterkan,  en kennararnir við Amlóða. Við gengum svo frá Djúpalónssandi yfir í Dritvík þar sem átta eftirlegukindur urðu á vegi okkar en sáum til allrar hamingju engin ummerki um það sem víkin dregur nafn sitt af.

Eftir stutt stopp á Arnarstapa var ferðinni svo heitið í Sönghelli en það er fyrsta örnefni á Íslandi sem kennt er við söng. Í Sönghelli dvöldu Bárður og félagar fyrst eftir að þeir tóku land á Íslandi og þinguðu þar jafnan síðan.

Loks heimsóttum við Rauðfeldargjá en þangað kastaði Bárður öðrum bróðursyni sínum eftir að Helga dóttir hans hvarf. Þeir hugrökkustu í hópnum klifu fossa djúpt inni í gjánni.

Veðrið var frábært allan daginn og ferðin í alla staði vel heppnuð. Frábærir nemendur voru skólanum og sjálfum sér til mikils sóma. Takk fyrir samveruna!

 






Tækniskólinn

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica