JólaLAN
Jóla-LANmót Tækniskólans er orðinn fastur liður í félagslífi skólans og síðast komust færri að en vildu. Að þessu sinni verður spila í þrjá daga en ekki tvo og var það sérstök ósk Lan-nefndar Tækniskólans.
Fyrir þá sem ekki þekkja til er LAN-mót svokallað hópspilunar tölvuleikjamót. Þar koma tölvuleikjaspilarar saman í einu rými og nota sér staðbundið innra net til að spila hver á móti öðrum. Eitt af einkennum þessa móts er að spilað er bæði daga og nætur þannig að þetta er nokkuð úthald.
LAN-mótið verður haldið í Íþróttasal Tækniskólans við Skólavörðuholt í Reykjavík frá klukkan 20:00 föstudaginn 11. desember til kl 14:00 mánudaginn 14. desember.
Hver spilari þarf að koma með eigin tölvu, skjá, lyklaborð og mús ásamt LAN-snúru og fjöltengi. Einnig eiga spilarar að eiga eintak af þeim leikjum sem eru spilaðir. LAN-nefndin útvegar borð og stóla en sumir koma einnig með sína stóla. Tölvubúnaður keppenda er á eigin ábyrgð og gerist keppandi uppvís að brotum á reglum LAN-mótsnefndar getur hún vísað keppanda úr húsi.
Þetta mót fellur undir lög um skemmtun framhaldsskóla og er því áfengis-og vímuefnalaust.
Spilað verður allan sólahringinn og því eru gefin út leyfisbréf sem foreldrar 18 ára og yngri verða að skrifa upp á, annars er ólögráða spilurum ekki hleypt inn.
Leyfisbréf - prentið út og komið með með ykkur.
Þátttakan er keppendum að kostnaðarlausu.
Haldin verða mót í eftirfarandi leikjum:
Call of Duty: Modern Warfare
DOTA
Counter Strike 1.6
Vinningar eru í boði fyrir sigur á mótum.
Meðan á mótinu stendur munu starfsmenn fasteignaumsjóna fylgjast með LANinu og Öryggismiðstöðin sér um gæslu á næturnar.
Pizzur og Gos er selt á staðnum
Pizza er á 1.250,-
Gos 1,5 lítrar á 150,- kr.
Ábyrðarmenn LANsins:
Brynja Ósk Ragnarsdóttir
868-2604
Daði Hauksson
846-7218
Góða skemmtun.

