Afhending TAXTA 2009
Taxti er hugbúnaður fyrir fyrirtæki sem selja út mannskap, tæki og vörur. Taxti gerir fyrirtækjunum kleift að átta sig á einfaldan hátt á því hver raunkostnaður er að baki útseldri vöru og þjónustu fyrirtækisins. Meginmarkmið Taxta er að skrá og reikna út kostnaðinn sem liggur að baki hverjum útseldum tíma starfsmanna og útsöluverð vöru eftir að búið er að ákveða hagnaðarstig.
Anna Vilborg Einarsdóttir skólastjóri Endurmenntunarskólans tók við gjöfinni fyrir hönd Tækniskólans, skóla atvinnulífsins. Það er mikill fengur að fá verkfæri sem þetta til kennslu og náms í rekstri fyrirtækja, bæði fyrir kennara Meistaraskólans sem og nemendur. Viðkomandi kennurum í Meistaraskóla verður boðið upp á hugbúnaðinn og honum komið fyrir í einhverri af tölvustofum skólans svo nemendur hafi aðgang að TAXTA í kennslustundum og fái þannig tækifæri til að vinna að raunhæfum verkefnum.
Á myndinni eru Anna Vilborg Einarsdóttir Tækniskólanum, Ferdinand Hansen og Ingi Bogi Bogason frá Samtökum iðnaðarins.

