Ljótasta greiðslan
Margir tóku þátt í keppninni um ljótustu hárgreiðsluna enda til mikils að vinna. Nemendur og starfsmenn Hársnyrtiskólans aðstoðuðu þá sem það vildu.
Verst greiddu nemendurnir reyndust tveir og verða þeir væntanlega að skipta með sér farandverðlaununum Kollunni. Sá starfsmaður Tækniskólans sem skaraði fram úr fékk hins vegar einkastæði við skólann fram að áramótum.
|
Glæsilegar greiðslur |
Karólína Guðlaugsdóttir kennari þótti bera af starfsmönnum skólans. |
|
Sigurgreiðsla herrans var virkilega flott, með pizzu og platælu, nammi og ýmislegt fleira "góðgæti". |
Stúlkan var einnig stórglæsileg, með liti, rör, hlaup, cerios , gleraugu og fleira í sínu hári.
|





