Unglist 2009
Listahátíðin UNGLIST er árviss viðburður á vegum HINS HÚSSINS. Undanfarin ár hafa nemendur á Fataiðnbraut tekið öflugan þátt í hátíðinni með því að skipuleggja tískusýningu. Í fyrra bættust nemendur Hársnyrtiskólans í hópinn og þeir verða líka með í ár. Nemendur á öðrum brautum (Listnámsbraut, Ljósmyndabraut og fleiri) hafa einnig tekið þátt í Unglist með ýmsum hætti.
Nú er spurning hvort fleiri nemendur Tækniskólans verði með þetta árið! Þarna er kjörið tækifæri til að spreyta sig á að setja saman heimildamynd, stuttmynd, taka ljósmyndir – vera með! Taka þátt í Myndlistamaraþoni, eða setja upp viðburð af einhverju tagi! Nánari upplýsingar hjá Ásu Hauksdóttur, verkefnisstjóra UNGLISTAR, Hinu Húsinu : asa.hauksdottir@reykjavik.is
Þann 14. nóvember nk. verður Tískusýningin okkar á Unglist. Þema sýningarinnar þetta árið eru HETJUR - bæði ofur- og hversdagshetjur (túlkun á þemanu er algjörlega frjáls).
Þátttaka í UNGLIST er alfarið á ábyrgð nemenda og er öllum frjálst að taka þátt.
Skráningarblöð fyrir þátttöku í tískusýningu liggja frammi í stofum 302, 101 og 103, Skólavörðuholti.
Skrá þarf nafn, netfang, símanúmer og hversu margar innkomur þið ætlið að vera með í TÍSKUSÝNINGU .
Skráningu lýkur 22. október.
Verkefnisstjórar á Fataiðnbraut vegna UNGLIST:
Snædís Ylfa snaedisy@gmail.com
s. 694-6249
og Tara tarajensd@gmail.com
s. 770-0692

