Opnað fyrir innritun
Nú hefur verið opnað fyrir innritun í laus pláss í áföngum í kvöld- og fjarnámi.
Nemendur sem vilja nýta sér þetta eru hvattir til að innrita sig hér:
INNRITUN
Byrjað verður að afgreiða umsóknir laugardaginn 29. ágúst. Ekki er hægt að breyta umsóknum eftir að búið er að afgreiða þær.
Að breyta umsókn:
Til að breyta umsókn þarf að smella hér á innskráning. Þar er hægt að breyta með því að nota lykilorð sem send voru í tölvupósti eftir upphaflega innritun.
Kennsla í kvöldskóla og fjarnámi hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 31. ágúst.

