Byr veitir námsstyrki
Síðari úthlutun skólastyrkja Byrs á þessu ári fór fram nýlega og afhenti Páll Óskar Hjálmtýsson styrkina sem runnu til framhalds- og háskólanemenda. Alls voru veittir sex styrkir að heildarupphæð 500 þúsund krónur. Fjórir framhaldsskólanemar hlutu 25 þúsund króna styrk og tveir háskólanemar hlutu 200 þúsund króna styrk.
Styrkþegarnir á framhaldsskólastigi voru þau Guðjón Ingi Gunnarsson úr Tækniskólanum, Sigurður Örn Arnarson úr Iðnskólanum í Hafnarfirði, Helga Kristín Guðmundsdóttir úr Menntaskólanum við Sund og Karen Ósk Birgisdóttir úr Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Á háskólastigi komu styrkirnir tveir í hlut Vordísar Baldursdóttur, meistaranema í auðlindafræðum við Háskólann á
Akureyri, og Báru Sigfúsdóttur, sem nemur listdans í Performing Arts Research and Training Studios (PARTS) í Brussel.
Skólastyrkir Byrs eru veittir tvisvar á ári. Næst verður úthlutað um áramót vegna haustannar 2010. Styrkþegar eru valdir af úthlutunarnefnd Byrs, meðal annars með hliðsjón af árangri og framtíðaráformum.
Páll Óskar afhenti skólastyrkina. Á myndinni eru Guðjón Ingi Gunnarsson, Guðrún Jónsdóttir, móðir Báru Sigfúsdóttur, Páll Óskar Hjálmtýsson og Sigurður Örn Arnarson.

