Styrkir til náms á Norðurlöndunum
Ferða- og dvalarstyrkur
IÐAN fræðslusetur auglýsir eftir umsóknum til vinnustaðanáms á Norðurlöndunum. Norræna ráðherranefndin styrkir nemendur í öllu iðn- og starfsnámi til að stunda hluta af vinnustaðanámi sínu á Norðurlöndunum. Úthlutað
verður úr sjóðnum í júní 2009 og október 2009. Hámarksdvöl er sex mánuðir og lágmarksdvöl er tveir mánuðir.
Sækja þarf um fyrir 15. júní 2009 og seinni umsóknarfrestur er 15. september 2009.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs eða í síma 590 6400.
IÐAN fræðslusetur hefur tekið að sér í umboði menntamálaráðuneytisins að annast undirbúning, framkvæmd og úthlutun styrkja frá Norrænu ráðherranefndinni til nemenda í iðn-og starfsnámi ásamt eftirliti með gerð og framkvæmd samninga við nemendur.

