Innritun í dreifnám
Innritun í dreifnám á haustönn 2012 er hafin og lýkur föstudaginn 7. september. Nú geta dagskólanemar skráð í laus pláss á innritinuarvefnum. Þeir þurfa svo að hafa samband við Gyðu Richter bókara, gri@tskoli.is, sími 514-9037, til að ganga frá greiðslu og fá niðurfelldan innritunarkostnaðinn
Opið verður fyrir innritun í laus pláss í einstökum áföngum frá 11. ágúst til 7. september.
Dreifnám Tækniskólans er nám utan dagskóla og sameinar kosti fjar- og kvöldnáms. Í dreifnámi fer kennsla fram í gegnum kennsluvef skólans Námsnetið eða í staðnámi. Einnig geta áfangar verið kenndir að hluta í fjarnámi og að hluta í staðlotum.

