Skóli atvinnulífsins
Fréttir

Flugvirkjanám hefst í Tækniskólanum

Fyrsti dagur flugvirkjanáms 10. nóvember 2011

10. nóvember 2011 hófst nám í flugvirkjun í Tækniskólanum, skóla atvinnulífsins. Það er Flugskóli Íslands sem hefur umsjón með náminu. Flugvirkjun hefur ekki verið kennd á Íslandi í áratugi.

23 nemendur hefja námið en kennslan er öll á ábyrgð Lufthansa Resource Technical Training, sem einnig leggur til öll námsgögn. Kennt er samkvæmt staðli EASA, Part 147, og er kennslan öll á ensku.

Náminu er skipt upp í 2 fasa. Fasi eitt er bóklegi hlutinn en fasi tvö verklegur bæði í skóla og á vinnustað.

Framundan er krefjandi nám og óskum við nemendum velfarnaðar í náminu. Á myndinni er námshópurinn ásamt skólameisturum Tækniskólans og starfsmönnum Flugskóla Íslands.







Tungumál