Skóli atvinnulífsins
Fréttir
Meistaraskólinn - útskriftarhópur vorið 2010

Útskrift úr Meistaraskóla, diplómanámi og Tækniakademíunni 29. maí.

98 nemendur útskrifaðir af 7 brautum.

Í annað sinn í sögu skólans var nú sérstök útskrift nemenda úr Meistaraskólanum, diplómanámi og Tækniakademíunni. Útskrifað var frá Margmiðlunarskólanum, Hönnunar- og handverksskólanum, þ.e nemendur í diplómanámi í MÓTUN og Tækniakademíunni, þ.e. nemendur í diplómanámi í lýsingarfræði og lýsingarhönnun, diplómanámi í rekstri og stjórnun ásamt Meistaraskólanum. Hátíðin var í Hallgrímskirkju laugardaginn 29. maí kl. 14:00.

Veljið hlekkina til að sjá stærri myndir af útskriftarhópunum og myndirnar eru til sölu hjá Jóhannesi Long ljósmyndara.

Útskriftarhátíðin hófst með tónlistaratriði og svo útskrifuðu skólastjórar hvers skóla nemendur sína og afhentu þeim skírteini sín. Verðlaun voru veitt fyrir fyrir góðan árangur í ýmsum greinum og má hér sjá lista yfir verðlaunin og þá nemendur sem þau hlutu :

Meistaraskólinn

   
Verðlaun Tækniskólans Birgir Örn Guðmundsson Góður árangur í skólanum
Verðlaun Samtaka iðnaðarins Haraldur Guðmundsson Bestur árangur í Meistaraskólanum

Margmiðlunarskólinn

   
Verðlaun Tækniskólans Sigmundur Sverrir Guðlaugsson Góður árangur í Margmiðlunarskólanum
Verðlaun Samtaka iðnaðarins Sunna Björk Mogensen Góður árangur í Margmiðlunarskólanum
Gagarín Lára Fanney Gylfadóttir Bestur árangur í Margmiðlunarskólanum

Diplómanám í rekstri og stjórnun 

   
  Högni Páll Harðarson Góður árangur í rekstri og stjórnun
  Ásgrímur Ingólfsson Góður árangur í útvegsrekstrarfræði

Hönnunar- og handverksskólinn

   
Verðlaun Tækniskólans Halldóra Hafsteinsdóttir Bestur árangur í MÓTUN
  Guðlaug Geirsdóttir  Fyrir framför og góða verktækni

Lýsingatækni og hönnun

   
Ljóstæknifélag Íslands Reynir Örn Jóhannesson  Góður árangur í lýsingarhönnun
Ljóstæknifélag Íslands Davíð Hafsteinsson  Góður árangur í lýsingarfræði





Tækniskólinn

Tungumál