Skóli atvinnulífsins
Fréttir
Verðlaunahafar Tækniskóla vor 2010

Útskrift Tækniskólans 21. maí 2010 - myndir og verðlaunahafar

Útskrifaðir voru nemendur í tvennu lagi frá Tækniskólanum, skóla atvinnulífsins, þetta vorið. Fyrst var útskrift út dagskóla 21. maí og síðan frá Meistaraskólanum og Tækniakademíunni 29 maí.

Frá Tækniskólanum í dagskóla útskrifuðust 250 nemendur úr níu skólum af 13 mismunandi brautum.  Athöfnin fór fram í Háskólabíó og var mjög hátíðleg og fylltu nemendur og aðstandendur þeirra salinn.

Tónlistarflutningur var harmonikkuleikur sem Halldór Pétur Davíðsson, Jónas Ásgeir Ásgeirsson, Flemming Viðar Valmundsson og Benedikt Kristján Magnússon sáu um.

Ávarp flutti Jón Steindór Valdimarsson formaður stjórnar Tækniskólans.

Skólastjóri hvers skóla sá um að brautskrá nemendur úr sínum skóla og afhenda þeim skírteini og síðan var tekin mynd af útskriftarhópnum. Myndir má sjá hér í töflunni með því að velja nafn hvers skóla en betri útgáfur af þeim eru til sölu hjá ljósmyndaranum Jóhannesi Long.

Verðlaun voru veitt í mörgum greinum og er óhætt að segja að verðlaunahafar hafi verið frábærir fulltrúar þessa góða hóps nemenda sem nú útskrifuðust.

 Eftirtaldir fengu verðlaun:

Byggingatækniskólinn


 
Skólaverðlaun Ingibjörg Ingólfsdóttir Góður heildarárangur í skólanum
Finnur Ó Thorlacius Skúli Már Sigurðsson Hæsta einkunn í iðnteikningu byggingamanna
Byggingatækniskólinn Birkir Örn Arnarsson Góður árangur í faggreinum
Félag tækniteiknara Ingibjörg Ingólfsdóttir Góður árangur í faggreinum tækniteiknunar

Hönnunar- og handverksskólinn

   
Skólaverðlaun Sigrún Harpa Þórarinsdóttir Góður heildarárangur í skólanum
Klæðskera- og kjólameistarafélagið Lilja Björg Rúnarsdóttir Góður árangur í faggreinum í kjólasaum
Listnámsbrautin Tinna Guðbjörnsdóttir Góður árángur í hönnunargreinum
Hönnunar- og handverksskólinn Lilja Unnarsdóttir Góður árangur í faggreinum í Gull- og silfursmíði

Raftækniskólinn

   
Skólaverðlaun Óskar Frank Guðmundsson Góður heildarárangur í skólanum
Rafiðnaðarsambandið Hafþór Ingi Pálsson  Góður árangur í faggreinum rafvirkja
Fálkinn Óskar Frank Guðmundsson Bestur árangur í stýritækni

Hársnyrtiskólinn

   
Skólaverðlaun Linda Björk Ingólfsdóttir Góður heildarárangur í skólanum
ISON heildverslun Linda Björk Ingólfsdóttir Góður árangur í faggreinum á  hársnyrtibraut
ISON heildverslun Katrín Björgvinsdóttir Góður árangur í faggreinum á  hársnyrtibraut
Halldór Jónsson Harpa Harðardóttir Góður árangur í faggreinum á  hársnyrtibraut

Upplýsingatækniskólinn

   
Skólaverðlaun Heiðar Þórðarson Góður heildarárangur í skólanum
Félag bókagerðamanna Georg Kristófer Young Besti árangur í faggreinum upplýsinga- og fjölmiðlagreina
Ljósmyndarafélag Íslands Jóna Sigþórsdóttir Besti árangur í ljósmyndun
Skýrslutæknifélag Íslands Birgir Örn Birgisson Besti árangur á tölvubraut

Skipsstjórnarskólinn

   
Skólaverðlaun Sigurður Helgi Védísarson Góður heildarárangur í skólanum
Landsamband íslenskra útvegsmanna Rúnar Guðmundsson Hæsta einkunn í siglingagreinum
Verðlaunasjóður Guðmundar Kristjánssonar Sigurður Helgi Védísarson Hæsta einkunn í siglingafræði
Farmannabikar Eimskips Sigurður Helgi Védísarson Hæsta einkunn í skipsstjórnargreinum

Véltækniskólinn

   
Skólaverðlaun Kristinn Þór Kristinsson Góður heildarárangur í skólanum
Landsamband íslenskra útvegsmanna Birgir Hrafn Hallgrímsson Góður árangur í véltæknigreinum
Vél- og málmtækni Kristinn Þór Kristinsson Góður árangur í rafmagnsfræðigreinum

Fjölmenningarskólinn

   
Skólaverðlaun Þórhildur Ásgrímsdóttir Góður árangur á starfsbraut málmiðna

Tæknimenntaskólinn

   
Samtök iðnaðarins: stúdentspróf af starfsnámsbrautum Geirþrúður Einardóttir Góður námsárangur 
Iðnmennt Geirþrúður Einardóttir Góður árangur í íslensku
Iðnmennt Geirþrúður Einardóttir Góður árangur í stærðfræði
Þýska sendiráðið Sigmundur Magnússon Góður árangur í þýsku
Iðnaðarmannafélagið Linda Björk Ingólfsdóttir Ástundun og góður árangur í teikningu

 Heildarverðlaun

   
Verðlaun Tækniskólans Sigurður Helgi Védísarson Besti heildarárangur
Verðlaun Tækniskólans Sigrún Harpa Þórarinsdóttir Næstbesti heildarárangur

 Verðlaunahafar Tækniskóla vor 2010






Tækniskólinn

Tungumál