Innritun í dreifnám
Aðstoð við innritun verður mánudaginn 9. ágúst frá kl. 16 til 18 í Tækniskólanum Skólavörðuholti, matsal nemenda á 3. hæð.
Greiðslur verða gjaldfærðar næstu daga og lýkur áður en skóli hefst.
Önnin hefst 3. september og lýkur 13. desember.
Kennsla hefst í öllu dreifnámi með staðbundinni lotu í öllum áföngum föstudaginn 3. september, kl 16:00 - 20:00, og laugardaginn 4. september, kl. 8:30 - 16:00.
Allar loturnar verða sendar út á netinu og geta þeir sem ekki eiga möguleika á að mæta fylgst með þeirri útsendingu.
Skipulag dreifnáms
Skipulag dreifnámsins er misjafnt eftir skólum. Nánari upplýsingar má fá á síðum hvers skóla.
Byggingartækniskólinn
Endurmenntunarskólinn (Tækniakademían)
Meistaraskólinn
Raftækniskólinn
Skipsstjórnarskólinn
Tæknimenntaskólinn
Upplýsingatækniskólinn
Véltækniskólinn
Um dreifnám
Dreifnám er nám utan dagskóla og sameinar kosti fjar- og kvöldnáms. Í dreifnámi getur áfangi verið kenndur að öllu leyti í fjarnámi, en þá fer kennsla fram í gegnum kennsluvef skólans, Námsnetið, eða að öllu leyti í staðbundnu námi. Einnig geta áfangar verið kenndir að hluta í fjarnámi og hluta í staðbundnum lotum.
Dreifnám verður í boði í eftirtöldum skólum:
Byggingatækniskólanum, Fjölmenningarskólanum, Meistaraskólanum, Raftækniskólanum, Skipstjórnarskólanum, Tækniakademíunni (Endurmenntunarskólanum), Tæknimenntaskólanum, Upplýsingatækniskólanum og Véltækniskólanum.
Gjaldskrá dreifnáms:
| Innritunargjald | 12.000 |
| Einingarverð | 5.000 á einingu |

