Á döfinni
| 18 mar.. 2010 | 19 mar.. 2010 »
Íslandsmót iðn- og verkgreina
Fimmtudaginn 18. og föstudaginn 19. mars verður Íslandsmót iðn- og verkgreina haldið í Smáralindinni, í Vetrargarðinum og á fyrstu hæð. Keppnin í ár verður sú stærsta hingað til á Íslandi en keppt er í 15 greinum auk þess sem fleiri greinar verða með sýningar á aðferðum og tækni.
Rúmlega þrjátíu nemendur keppa fyrir hönd Tækniskólans. Keppni hefst báða dagana kl. 09:30 og lýkur kl. 16:30 á fimmtudaginn en 15:30 á föstudaginn. Verðlaunaafhending hefst svo kl. 18:00 á föstudag.
Þeir nemendur sem vinna til verðlauna á Íslandsmótinu eiga möguleika á verða fulltrúar Íslands í sinni grein á Evrópu- og heimsmeistaramótum iðngreina (Euroskills og Worldskills). Það er því til mikils að vinna fyrir þá sem taka þátt.
Tækniskólinn er auk þess með um 90 fermetra sýningarsvæði á jarðhæð Smáralindar báða dagana. Þar verða nemendur og starfsfólk að störfum og segja frá starfsemi skólans. Boðið verður upp á áhugaverðar og skemmtilegar sýningar og gestir geta kynnt sér keramikmótun, rennibekki, útskurð, lóðningar, vélahermi og forritun á vélbúnaði, klæðskurðarverkstæði, lítið verkstæði í gull- og silfursmíði og séð hársnyrtinema að störfum svo eitthvað sé nefnt.
Eftirtaldir nemendur keppa fyrir hönd Tækniskólans:
| Nafn | Keppnisgrein |
| Ársæll Þór Kristjánsson | Dúklagningar |
| Sigurður Lúðvík Stefánsson | Dúklagningar |
| Ingunn Jóna Þórhallsdóttir | Grafísk miðlun |
| Rakel Ósk Antonsdóttir | Grafísk miðlun |
| Rebekka Líf Albertsdóttir | Grafísk miðlun |
| Elis Veigar Ingibergsson | Hársnyrtiiðn |
| Eydís Ögn Uffadóttir | Hársnyrtiiðn |
| Katrín Ósk Guðlaugsdóttir | Hársnyrtiiðn |
| Katrín Sif Jónsdóttir | Hársnyrtiiðn |
| Linda Björk Ingólfsdóttir | Hársnyrtiiðn |
| Olga Rut Kristinsdóttir | Hársnyrtiiðn |
| Ólög Gunnarsdóttir | Hársnyrtiiðn |
| Rakel Jensdóttir | Hársnyrtiiðn |
| Sigurbjörg Halldórsdóttir | Hársnyrtiiðn |
| Sunna Sigurðardóttir | Hársnyrtiiðn |
| Þóranna Erla Sigurjónsdóttir | Hársnyrtiiðn |
| Brynja Guðmundsdóttir | Hársnyrtiiðn |
| Margrét Edda Einarsdóttir Viðja | Hársnyrtiiðn |
| María Sigurðardóttir | Hársnyrtiiðn |
| Anton Rafn Jónsson | Húsasmíði |
| Birkir Örn Arnarson | Húsasmíði |
| Björn Þórisson | Ljósmyndun |
| Laufey Ósk Magnúsdóttir | Ljósmyndun |
| Sigurgeir Sigurðsson | Ljósmyndun |
| Ástmar Yngvi Birgisson | Málaraiðn |
| Björk Högnadóttir | Málaraiðn |
| Guðmundur Kristinn Vilbergsson | Málaraiðn |
| Arngrímur Þorri Gylfason | Málmsuða |
| Ólafur Kolbeinsson | Málmsuða |
| Andri Þór Bjarnason | Rafvirkjun |
| Þóra Björk Samúelsdóttir | Rafvirkjun |
Sjón er sögu ríkari. Við hvetjum alla til að koma, fylgjast með spennandi keppni og skoða svæðið okkar í Smáralindinni

