Á döfinni
| 27 feb.. 2010 | 28 feb.. 2010 »
Skrúfudagur
Kynningardagur Tækniskólans. Skrúfudagurinn laugardaginn 27. febrúar
Opið hús frá kl. 12-16
Á Háteigsvegi:
Skipstjórnarskólinn, Tæknimenntaskólinn, Véltækniskólinn og Upplýsingatækniskólinn
Hér er dagskráin á pdf formi.
Gestum gefst kostur á að fylgjast með ljósmyndanemum að störfum, skoða skipstjórnarhermi, vélasali og verkefni nemenda
Málþing: „Áhrif glóperubanns á Íslandi.“ Opið öllum
Grunnskólakynningar
Náms- og starfsráðgjöf
Kynnisferðir um skólann kl. 13, 14 og 15
Rallýbílar verða til sýnis
Rafmagnsbíll frá HR
Eftirfarandi aðilar verða með kynningu:
• Fossberg
• Barkasuða Guðmundar
• Slysavarnaskóli sjómanna
• Björgunarsveitin Ársæll
• Rönning
• Danfoss
• Gasteck
• Poulsen
• Hekla
• Sérefni
• Landsbjörg
Kökuhlaðborð - léttar veitingar gegn vægu verði!
Í Vörðuskóla:
Upplýsingatækniskólinn
Sýning á verkum nemenda í grafískri miðlun
Opnun nemendavefsíðu leikfélagsins
Æfingabúðir fyrir Forritunarkeppnina 13:00-15:00
Opin vinnustofa Autocad
Opin vinnustofa Revit
Grafískir miðlarar að störfum
Á Skólavörðuholti:
Byggingatækniskólinn, Endurmenntunarskólinn, Fjölmenningarskólinn, Hársnyrtiskólinn. Hönnunar- og handverksskólinn, Tæknimenntaskólinn, Raftækniskólinn og Tækniakademían
Sýning á verkum nemenda um allan skólann
Keppni hársnyrtinema í formblæstri
Undankeppni fyrir Íslandsmeistaramót í byggingagreinum
Keppni í tæknilegó
Örnámskeið í bólstrun og skreytingu herðatrjáa fyrir samkvæmis- og brúðarkjóla
Hvernig á að búa til linda, slifsi og þverslaufur fyrir herra?
Að búa til slaufur og blóm úr efni
Handverksmarkaðir nemenda
Skartgripasala nemenda í gull- og silfursmíði
Nemendur Hársnyrtiskólans að störfum
Fjölmargar vinnustofur í gangi sem gaman er að skoða
Náms- og starfsráðgjöf í boði fyrir gesti og gangandi
Leikfélag Tækniskólans
Fulltrúar frá nokkrum háskólum verða með kynningu
Cafe International - nemendur í Fjölmenningarskólanum selja rétti frá heimalandi sínu
Kökuhlaðborð - léttar veitingar gegn vægu verði!
Flugskóli Íslands
Opið hús og margt forvitnilegt að skoða að Bæjarflöt
1-3, Reykjavík og á Reykjavíkurflugvelli (við hlið Hótels
Loftleiða)

