Skóli atvinnulífsins

Námsframboð

Upplýsingtækniskólinn

UPPLÝSINGATÆKNISKÓLINN SKIPTIST Í ÞRJÁR BRAUTIR

UPPLÝSINGA- OG FJÖLMIÐLABRAUT þar sem áherslan er á efnið sem miðla skal, form þess og útlit. Brautin tekur mið af nýjum tímum og nýrri tækni við framsetningu upplýsinga og miðlun þeirra.

Nemendur sem innritast í grunnnám í upplýsinga‐og fjölmiðlagreinum þurfa að hafa lokið námi í
grunnskóla og uppfyllt skilyrði um lágmarks viðmiðunareinkunn í íslensku og stærðfræði, þ.e.a.s. 5.0.

Fyrstu fjórar annirnar er sameiginlegt grunnnám en að því loknu er hægt að velja milli fjögurra sérsviða. Það eru grafísk miðlun, bókband, prentun og ljósmyndun, allt löggiltar iðngreinar. Síðan getur tekið við framhaldsnám af ýmsu tagi eða starfsþjálfun sem leiðir til sveinsprófs.

TÖLVUBRAUT

Tölvubrautin er skipulögð sem þriggja ára nám. Nemendur sem ljúka tölvubrautinni hafa öðlast hagnýta menntun í tölvufræðum sem opnar þeim mörg störf. Nemendur sem kjósa að halda áfram og búa sig undir framhaldsnám á háskólastigi fá mjög góðan grunn á þeim vettvangi tölvufræða sem þeir kjósa að sérhæfa sig í og stúdentspróf sem er sniðið að kröfum viðtökuskóla. Nám af tölvubraut veitir ekki lögvernduð starfsréttindi.

Almennar greinar í grunndeild eru 27 einingar.
Faggreinar í grunndeild eru 30 einingar (kjarni).
Faggreinar í framhaldsdeild, velja verður minnst 54 einingar (sérgreinar).

Inntökuskilyrði eru að hafa lokið grunnskólanámi á fullnægjandi hátt að mati grunnskóla. Mikil aðsókn er í nám á Tölvubraut og eru nemendur valdir inn á grundvelli fyrra náms. Lágmarkseinkunn í stærðfræði er 6,0.

MARGMIÐLUNARSKÓLINN
Margmiðlun er heiti yfir fjölmargar starfsgreinar og starfsvið sem lúta að veraldarvefnum, kvikmyndun, hreyfimyndagerð, grafískri hönnun og fleiru. Nám í margmiðlun er fjölbreytt og starfsviðið margþætt. Sumar starfsgreinanna eiga sér langa sögu í atvinnulífinu eins og prentun, hönnun og kvikmyndun. Aðrar eru nýrri og tengjast tölvuleikjagerð, þrívíddarvinnslu, viðmótshönnun og hönnun á margmiðlunarefni.

Nemendur þurfa að hafa lokið námi í framhaldsskóla til að geta sótt um nám við Margmiðlunarskólann. Þeir þurfa til dæmis að hafa lokið þriggja ára námi í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum (grunnnámi og sérnámi); sveinsprófi í bókagerðargreinum; námi af listnámsbraut; námi af tölvubraut; stúdentsprófi eða öðru sambærilegu námi.

Skólastjóri Upplýsingatækniskóla er Bjargey G. Gísladóttir, bgg@tskoli.is
Viðtalstímar eru eftir samkomulagi. Hafið samband í síma 514 9351 eða 822 2336.





Tungumál