Tæknimenntaskólinn
Góður grunnur – greið leið
Hlutverk Tæknimenntaskólans er tvíþætt. Annars vegar stunda nemendur allra undirskóla eða brauta Tækniskólans þar nám í bóklegum greinum, s.s. ensku, íslensku og stærðfræði. Hins vegar útskrifast nemendur með stúdentspróf frá skólanum.
Stúdentar frá Tækniskólanum hafa það fram yfir stúdenta af hefðbundnum stúdentsbrautum framhaldsskóla að þeir hafa alltaf aflað sér tvíþættrar menntunar þegar þeir útskrifast. Nám til stúdentsprófs er þannig viðbótarnám við það sérsvið eða braut sem nemendur velja sér, s.s. almenna hönnun, tölvubraut, húsgagnasmíðabraut o.s.frv. Einnig geta nemendur útskrifast sem stúdentar af náttúrufræðibraut með sérhæfingu í flugtækni, raftækni, skipstækni eða véltækni.
Markmið Tæknimenntaskólans er að veita nemendum traustan grunn í bóklegum greinum sem er nauðsynlegur hluti og undirstaða alls annars náms. Ennfremur að gera nemendum allra undirskóla eða brauta kleift að bæta við sig námi til þess að útskrifast með stúdentspróf auk útskriftar af tilteknu sérsviði.
Stefna Tæknimenntaskólans er að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir og efla sjálfstæði þeirra og frumkvæði.
Kolbrún Kolbeinsdóttir er skólastjóri Tæknimenntaskólans, kk@tskoli.is.
Fastir viðtalstímar á Skólavörðuholti, stofu 319
Mánudaga klukkan 13-14.30
Föstudaga klukkan 9-10.30
Fastur viðtalstími á Háteigsvegi, stofu 128
Þriðjudaga klukkan 9-10.30
Sími: 514 9301 og 8 91 92 30

