Tæknimenntaskólinn
Tæknimenntaskólinn
Góður grunnur – greið leið
Hlutverk Tæknimenntaskólans er tvíþætt. Annars vegar stunda nemendur allra undirskóla eða brauta Tækniskólans þar nám í bóklegum greinum, s.s. ensku, íslensku og stærðfræði. Hins vegar útskrifast nemendur með stúdentspróf frá skólanum.
Stúdentar frá Tækniskólanum hafa það fram yfir stúdenta af hefðbundnum stúdentsbrautum framhaldsskóla að þeir hafa alltaf aflað sér tvíþættrar menntunar þegar þeir útskrifast. Nám til stúdentsprófs er þannig viðbótarnám við það sérsvið eða þá braut sem nemendur velja sér, s.s. almenna hönnun, tölvubraut, húsgagnasmíðabraut o.s.frv. Einnig geta nemendur útskrifast sem stúdentar af náttúrufræðibraut með sérhæfingu í flugtækni, raftækni, skipstækni eða véltækni.
Markmið kennara Tæknimenntaskólans er að veita nemendum traustan grunn í bóklegum greinum sem er nauðsynlegur hluti og undirstaða alls annars náms. Ennfremur að gera nemendum allra undirskóla eða brauta kleift að bæta við sig námi til þess að útskrifast með stúdentspróf auk útskriftar af tilteknu sérsviði.
Stefna Tæknimenntaskólans er að efla sjálfstæði nemenda og frumkvæði með markvissum kennsluaðferðum og fjölbreyttu námsmati þar sem vinna á önninni er stór hluti lokaeinkunnar.
Kolbrún Kolbeinsdóttir er skólastjóri Tæknimenntaskólans, kk@tskoli.is.
Fastir viðtalstímar á kennslutíma á Skólavörðuholti, stofu 319
Mánudaga, miðvikudaga, föstudaga klukkan 10-11
Fastur viðtalstími á kennslutíma á Háteigsvegi, skrifstofu 2. hæð
Þriðjudaga klukkan 10-11
Viðtalstímar fyrir utan kennslutíma samkvæmt samkomulagi.
Sími: 514 9301 og 891 9230
| Tæknimenntaskólinn | Skólastjóri | Netfang | Símanúmer |
|---|---|---|---|
![]() |
Kolbrún Kolbeinsdóttir |
kk@tskoli.is | 514 9301 891 9230 |
| Viðtalstímar - dagar | Tími | Staðsetning | Stofa |
| Mán., miðv. og föstudaga |
10:00 - 11:00 |
Skólavörðuholti |
319 |
| Þriðjudaga | 10:00 - 11:00 |
Háteigsvegi |
Skrifst. 2. hæð |

