Fréttir

Hátíð nýsveina

Sjö nemendur Raftækniskólans fengu verðlaun

10.2.2010

  • Hátíð nýsveina í Ráðhúsi Reykjavíkur

Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur var haldin þann 6. febrúar síðastliðinn. Þar veitti Ásgrímur Jónasson formaður Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur og Forseti Íslands verndari hátíðarinnar viðurkenningar fyrir frábæran árangur á sveinsprófum árið 2009. Af átján verðlaunum runnu sjö til nemenda Raftækniskólans. Við sem störfum hjá Raftækniskólanum erum stolt af árangri nemenda okkar og stefnum á að halda þessu hlutfalli á komandi nýsveinahátíðum. Myndir má sjá á Fésbók: http://www.facebook.com/album.php?aid=156916&id=121537192530&saved#!/pages/Reykjavik-Iceland/Raftaekniskolinn-Taekniskolinn/121537192530


Úr skólastarfinu

Drónar - verkefni í HR kynnt

Drónar - verkefni nemenda í HR kynnt

Forvitnilegt verkefni nokkurra nemenda í Háskóla Reykjavíkur var kynnt í dag, 24. apríl, 2013, fyrir nemendum Raftækniskólans.

Lesa meira
Ólafur Friðrik Sigvaldason, tæknimaður hjá Securitas, færði Raftækniskólanum  tvær heimavarnir (öryggiskerfi) af fullkomnustu gerð

Gjöf frá Securitas

Ólafur Friðrik Sigvaldason, tæknimaður hjá Securitas, færði Raftækniskólanum tvær heimavarnir (öryggiskerfi) af fullkomnustu gerð með góðu úrvali skynjara.

Lesa meira
Gjöf frá Félagi rafeindavirkja

Höfðingleg gjöf til Raftækniskólans

13.mars 2013, á kynningardegi Raftækniskólans, afhenti Eyjólfur Ólafsson formaður Félags rafeindavirkja Raftækniskólanum gjafabréf upp á 750 þúsund krónur til kaupa á Festo vélbúnaði til nota við kennslu í rafeindavirkjun.

Lesa meira

Raftækniskólinn heimsóttur

13. mars var haldin kynning á starfsemi Raftækniskólans. Markmiðið var að kynna breytingar sem orðið hafa á skólanum, bæði kennsluháttum og húsnæði.

Lesa meira

 



Raftækniskólinn

Tungumál