Skóli atvinnulífsins
Fréttir
Nemendur í hljóðtækni

Innritun í hljóðtækninám til 6. desember

Innritun í hljóðtækninámið er nú hafin. Innritun fer fram í gegnum menntagatt. Brautin er undir Tækniskólanum og heitir "H -skólinn - Hljóðtækni". Innritun lýkur 6. desember.

Nám í hljóðtækni  er 60 eininga nám hjá Tækniskólanum sem kennt er í samstarfi við Sýrland hljóðver. Í janúar næstkomandi mun fyrsti hópur hljóðtækninema útskrifast. Alls byrjuðu tólf nemendur í janúar 2009 og hafa þeir stundað námið af miklu kappi.

Hljóðtækninámið er alls 60 einingar og er kennt yfir sumartímann. Annirnar eru því þrjár og er hver önn 20 einingar. Nemendur sem komast inn þurfa að taka allt námið og er ekki í boði að taka einstaka áfanga.






Tækniskólinn
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica