Skóli atvinnulífsins
Fréttir
Rafbíll: Fyrirlesarar frá HR

Fjölsóttur fyrirlestur - Að breyta bensínbíl í rafbíl

Guðjón Hugberg Björnsson, Hrafn Leó Guðjónsson og Hjörtur Gestsson, allir nemendur í rafmagnstæknifræði við Háskólann í Reykjavík, héldu áhugaverðan fyrirlestur um breytingu á bensínbíl í rafbíl.
Fyrirlesturinn var mjög vel sóttur og þurftu þeir félagar að svara fjölda spurninga um verkefnið. Þeir áætla að bíllinn verði tilbúinn á götuna þann 4. desember n.k. Verkefnið er dýrt og hafa þeir þurft að kaupa nánast allt efni erlendis frá.
Mikill áhugi er á rafbílum og er þetta þriðji fyrirlesturinn um þetta efni sem Raftækniskólinn heldur. Áður hefur verið fjallað almennt um rafbíla og vetnisbíla.






Tækniskólinn
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica