Nordisk Panorama
Nordisk Panorama kvikmyndahátíðin var sett í Reykjavík 25. september síðastliðinn. Setning hátíðarinnar var send út beint á veraldarvefinn og var sú útsending í höndum nemenda sjöundu annar í rafeindavirkjun. Nemendur Margmiðlunarskólans héldu utan um myndatökuna en rafeindavirkjanemarnir sáu um myndval, hljóð og sáu um að koma merkinu á stafrænt form inn á veraldarvefinn í gegn um nýjan Xsurv netþjón frá Apple. Hér er um að ræða hluta af námsefni raftækniskólanema en nemendur grunnáms rafiðna og rafeindavirkjunar glíma gjarnan við verkefni af þessu tagi. Sigurður Örn Kristjánsson er kennari nemenda og stýrði verkefninu.


