Skóli atvinnulífsins
Fréttir
Nemar í hjóðtækni

Nám í hljóðtækni

Í fyrsta skipti er nú boðið upp á nám í hljóðtækni hér á landi. Námið, sem er 60 einingar, er samstarfsverkefni Tækniskólans og Stúdíó Sýrlands. Tólf nemendur hófu nám í janúar 2009 og segjast þeir afar ánægðir með kennsluna og það að geta lært fagið hér á landi.

Stúdíó Sýrland býður upp á mjög góða aðstöðu, þar sem nemendur verða fljótlega þátttakendur í þeim verkefnum sem fyrirtækið sinnir. Stúdíó Sýrland er sennilega þekktast fyrir upptökur á verkum margra af helstu rokk- og popp hljómsveita landsins en þar er einnig tekin upp klassísk tónlist og talsetning á myndefni fyrir kvikmyndahús og sjónvarp er stór þáttur starfseminnar. Fyrirtækið hefur einnig yfir að ráða tveimur fullbúnum upptökubílum sem m.a. hafa verið notaðir til að taka upp tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Næst verður tekið við umsóknum um nám í hljóðtækni fyrir vorönn 2010. Skilyrði fyrir inntöku er að nemandi hafi lokið 60 einingum úr framhaldsskóla. Þegar valið er úr hópi umsækjanda er m.a. litið til tónlistarmenntunar eða reynslu af tónlist og hljóðupptöku en síðast sóttu mun fleiri um en hægt var að taka við.





Tækniskólinn
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica