Vísindaferð starfsmanna Raftækniskóla
Föstudaginn 17. apríl fóru kennarar Raftækniskólans í vísindaferð til Akraness.
Kennarar Raftækniskóla fóru í frábærlega vel heppnaða vísindaferð til Akraness föstudaginn 17. apríl. Lagt var af stað frá Tækniskólanum rétt upp úr hádegi og farið upp á Skaga. Þar var farið í skoðunarferð um Sementsverksmiðjuna sem var mjög fróðleg. Voru menn sammála um að koma aftur og skoða meira því naumur tími hindraði hópinn í að skoða allt það áhugaverða sem verksmiðjan hefur upp á að bjóða. Síðan var haldið til Fjölbrautarskólans, FVA, þar sem hópurinn fékk frábærar móttökur. Mjög forvitnilegt var að skoða aðbúnað skólans og sérílagi sjá fjölbreyttan og áhugaverðan búnað sem þeir hafa komið sér upp m.a. í stýringum. Eftir kaffi í boði strakana hjá FVA var haldið í Byggðasafnið. Þar var markt merkilegt að sjá, ekki síst hið fræga þrístökk Vilhjálms sem tryggði honum silfurverðlaun á ólympíuleikunum 1954. Að lokinni forvitnilegri skoðunarferð var snætt á veitingastaðnum Galito. Fararstjórn og undirbúningur var í höndum þeirra Erlings Kristjánssonar og Sigurðar Péturs og stóðu þeir sig frábærlega vel. Ferðin var vel skipulögð og fæðandi í alla staði.

