Fréttir
REII verkefninu lokið
Þjóðverjarnir farnir eftir vel heppnaða íslandsdvöl
Þýsku gestir okkar frá Stade hafa gert það gott á Íslandi. Að frátalinni sýningunni REII sem heppnaðist vel hafa þeir notað tímann vel til að skoða landið og verið undir dyggri leiðsögn nemenda Raftækniskólans. Strákarnir okkar fóru með þá á söfn, heimsóttu Snæfellsnes í vitlausu veðri, skoðuðu Árbæjarsafnið og Þjóðminjasafnið svo eitthvað sé nefnt. Þeir hafa átt hér ógleymanlegan tíma.

