Fréttir
Renewable Energies II
Sýning á efni um endurnýjanlega orkugjafa
Nemendur frá Þýskalandi, Finnlandi og Islandi settu upp áhugaverða sýningu um endurnýjanlega orkugjafa í sal Vörðuskóla. Sýningin endurspeglaði framboð á endurnýtanlegri orku eins og vatni, vindi og sjávarfallaorku. Þjóðverjarnir kynntu möguleika sólar og vindorku, Finnarnir kynntu sjávarfallaorku, vatnfallsorku og vindorku og íslensku nemarnir kynntu gufuafl, vatnsafl og nýtingu vetnis sem orkubera.

