Fréttir
Fyrirlestur um TETRA kerfið vel sóttur
Nálægt 60 nemendur Raftækniskólans sóttu áhugaverðan fyrirlestur um TETRA kerfið sem er mjög öflugt samskipta- og símkerfi
Jón Þóroddur Jónsson fjallaði um TETRA kerfið, uppbyggingu dreifikerfis og þá fjölmörgu möguleika sem kerfið býður upp á. Hægt er að nota kerfið sem hefðbundið talstöðvarsamband með aðgreindum hópum en einnig er hægt að hringja úr því beint í GSM farsímakerfið. Senda má smáskilaboð sem kallast SDS sem eru svipuð og SMS og er GPS tæki innbyggt í símanum. Langdrægni kerfissing se meiri en GSM kerfa og sendistyrkur hvers tækis hærri til að tryggja drægni. Björgunasveitir, slökkvilið og lögregla nota kerfið mikið og er þetta mikil stuðningur við almannavarnakerfið.

