Skóli atvinnulífsins
Fréttir
hlj_fundur

Kynningarfundur um hljóðtækninám vel heppnaður

Nálægt 60 manns komu á kynningarfund um hljóðtækninám sem Tækniskólinn í samvinnu við Sýrland eru með í mótun.

 

Þriðjudaginn 14. Janúar var haldin kynningarfundur um hljóðtækninám Tækniskólans og Sýrlands. 60 manns mættu ásamt fulltrúum Tækniskólans og Sýrlands. Námið var kynnt í meginatriðum og hvernig uppbygging þess hefur verið hugsuð. Einnig var sagt frá þeim töfum sem orðið hafa á því að hægt væri að byrja námið. Fjöldi fyrirspurna barst frá þáttakendum og var fundurinn í alla staði mjög vel heppnaður. Tæplega 50 umsóknir hafa borist um námið og þarafleiðandi er sá fjöldi að bíða eftir svari. Næstu skref eru að byrja að velja úr umsóknum þannig að ekki þurfi nema þeir sem komast inn að bíða. Áhugi á náminu hefur verið mun meiri en bjartsýnustu menn þorðu að vona og  undirtektir mjög góðar þrátt fyrir að ekkert hafi verið auglýst.






Tækniskólinn
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica