Hljóðtækni. Ný spennandi námsbraut
Samstarf Tækniskólans og Sýrlands tryggir bestu fáanlegu aðstöðu.
Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli Sýrlands og Tækniskólans um uppbyggingu nýrrar brautar í Raftækniskólanum. Um er að ræða hljóðtækninám sem útskrifar nemendur með góða þekkingu og reynslu í hljóðupptökum og hljóðvinnslu. Til að ná þessu markmiði eru kenndir áfangar í rafeindatækni, stafrænni sem hliðrænni. Einnig er áfangi í tónfræði og rekstrarfræði fyrir utan áfanga í upptöku og hljóðvinnslu. Unnið verður í vel útbúnum stúdíóum Sýrlands en Sýrland er eitt stærsta og best búna hljóðver hér á landi. Sjá má nánari kynningu um Sýrland hér. Vonast er til að hægt verði að hefja innritun fljótlega en það verður nánar auglýst síðar.

