Skóli atvinnulífsins
Fréttir
JonBjorn

Fyrirlestur um vetnisvæðinguna vel sóttur

Jón Björn Skúlason framkvæmdastjóri íslenskrar kom í heimsókn.

Þann 19. nóvember flutti Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjori Íslenskar Nýorku áhugaverðan fyrirlestur um möguleika vetnis í framtíðinni. Um 60 nemendur og kennarar mættu í fyrirlestrarsal Tækniskólans og var fyrirlesturinn mjög fróðlegur. Þar kom fram meðal annars að Jón Björn telur engan vafa á að vetni mun skipa stórann sess í framtíðinni til að knýja bíla, smábíla sem alvöru jeppa og ekki síður skipaflotann. Hvað snertir rafbílinn þá sagði hann að vetni sé orðið samkeppnisfært við bensín þetta sé bara spurning um fjöldaframleiðslu bíla og að ná verðinu niður. Vetnisbíll búinn efnarafal og rafmótor getur ekið allt að 520 kílómetra á hleðslunni. Þetta er spennandi framtíðarsýn fyrir þjóðfélagið því við íslendingar getum framleitt allt okkar vetni sjálfir. Ekki síður er það spennandi fyrir framtíðar rafiðnaðarmann því þetta eru jú rafbílar. Myndir af fyrirlestrinum eru hér. Fyrirlesturinn sjálfur er hér.






Tækniskólinn
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica