LEAPS verkefnið - undirritun
Mikilvægur styrksamningur er nú í höfn. Leonardo sjóðurinn styrkir LEAPS verkefnið um tæplega þrjátíu milljónir.
Hugmyndin að LEAPS verkefninu kviknaði þegar þrír kennarar Raftækniskólans heimsóttu skóla í bænum Halmstad í Svíðjóð í fyrra. Þetta voru þeir Sigurður Örn, Sigurður Strange og Bergsteinn. Þar kynntust þeir LearnWare kennsluhugbúnaði. Þessi búnaður er frábærlega samsett margmiðlun sem hjálpar nemendum í rafiðnfögum að átta sig á og skilja fjölda reglna og hugtaka í rafmagnsfræði. Ákveðið var að sækja um styrk hjá Leonardo til að kaupa og þýða forritið. Núna rúmlega ári seinna og fjölda vinnustunda var undirritaður samningur milli skóla í Eistlandi, Svíþjóð og Tækniskólans um kaup og þýðingu þessa hugbúnaðar. Þessi hugbúnaður mun valda straumhvörfum í kennslu í rafmagnsfræði og fleiri fögum. Á myndinni sést Baldur Gíslason skólameistari undirrita samninginn ásamt fulltrúum eista, svía og hönnuða LearnWare.

