Námsframboð
Útvegsrekstrarfræði
Nám í útvegsrekstrarfræði 46 ein. (ígildi 92 ECTS ein.) er sniðið að þörfum sjávarútvegarins og tekur tvö ár. Útvegsrekstrarfræði hentar þeim sem hafa starfsmenntun og reynslu úr sjávarútvegi.
Námið er krefjandi og gerir sömu námskröfur og eru gerðar á háskólastigi en boðið er upp á sveigjanleika í skipulagningu og skilum á verkefnum nemenda. Gert er ráð fyrir að nemendur séu tölvufærir og geti lesið námsefni á ensku.
Námið er skipulagt og unnið í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Nemendur geta sótt um mat á náminu inn í frekara nám við HR.
KENNSLUTILHÖGUN - DREIFNÁM, þ.e. FJARNÁM OG STAÐBUNDNAR LOTUR
Hægt að hefja nám hvenær sem er vor, sumar og haust á fyrri önnum námsins. Hver námsgrein er 3 einingar (ígildi 6 ECTS) og er kennt í 6 vikna lotum, ein námsgrein í senn. Námið er dreifnám, þ.e. blanda af fjarnámi og staðbundnum lotum. Nemendur koma, að öllu jöfnu, í skólann í tvær staðbundnar lotur, þrjá daga í senn, fim.- lau. Fyrirlestrar í staðbundnum lotum eru teknir upp og aðgengilegir fyrir nemendur á Námsnetinu, kennsluumhverfi Tækniskólans.
Námsmat hverrar námsgreinar tekur mið af henni en hverri námsgrein lýkur með prófi eða stærra lokaverkefni.
Undirbúningsdagar verða 12. - 14. ágúst. Dagskrá þeirra hefst kl. 09:00 þann 12. ágúst, kennt verður allan föstudaginn og hluta af laugardeginum. Þessa daga verður farið í skipulag námsins, Námsnetið (kennsluumhverfi Tækniskólans), stærðfræði, námstækni og gerð heimildarritgerða. Nemendur fá dagskrána senda á netfang.
Námið hefst svo mánudaginn 16. ágúst. Áfangar haustsins eru þrír, þ.e. HSF103 hagnýt stærðfræði, RHA103 rekstrarhagfræði og SKT103 skipstækni.
Staðbundnu loturnar eru sýnilegar á vefnum hér til vinstri undir Lotur í diplómanámi.
FRAMHALDSNÁM Í REKSTRARFRÆÐI - 61 ein. - ígildi 122 ECTS ein.
Nemendur sem óska eftir því að halda áfram námi eftir útvegsrekstrarfræðina geta tekið rekstrargreinar til rekstrarfræði.
Allar námsgreinar útvegsrekstrarfræði og 15 ein. af eftirtöldum námsgreinum rekstrarfræði; gerð og greining ársreikninga, hagnýt upplýsingakerfi, alþjóðaviðskipti, alþjóðafjármál, stjórnun og stefnumótun.
SKÓLAGJÖLD
Fyrir heila önn, þrjár námsgreinar eru greiddar 150.000 krónur.
UMSÓKNIR
Opið er fyrir umsóknir og hægt að sækja um á www.tskoli.is undir INNRITUN-TÆKNIAKADEMÍA. Nánari upplýsingar um námið fást í síma 514 9601 eða með fyrirspurnum á netfangið ave@tskoli.is
Kjarni
- Fjárhagsbókhald (3) FBK 103
- Fjármál I (3) FMÁ103
- Hagnýt stærðfræði (3) HSF103
- Lögfræði og tryggingamál (3) LÖG103
- Lokaverkefni (4) LVE104
- Mannauðsstjórnun (3) MAU103
- Markaðsfræði 103 (3) MAD103
- Rekstrarhagfræði (3) RHA103
- Rekstrarstjórnun (3) REK103H
- Verkefnastjórnun (3) VES103
- Þjóðhagfræði (3) ÞJÓ103
Sérgreinar
- Skipstækni (3) SKT103
- Veiðitækni (3) VEI103
- Vöruþróun og vinnsla 1 (3) VSL103
- Vöruþróun og vinnsla 2 (3) VSL203
Netfang brautar: ave@tskoli.is

